
Komið öll sæl og blessuð!
Langt síðan síðast og örugglega margt skeð bæði hjá ykkur og að sjálfsögðu okkur líka.
Eins og ykkur rekur eflaust minni til þá fórum við hjónin til útlanda, að vísu sitt í hvoru lagi, ég til Danmerkur og Svíþjóðar og Stína til Frakklands. Í stuttu máli þá var þetta alveg æðislegt. Við vorum mjög heppin með ferðafélaga, Stína með vinkonu sinni og mágkonu, og ég með Gunnari Smára. Burt séð frá því þá erum við ákveðin í því að þetta gerum við ekki ótilneydd aftur, það er að segja svona sitt í hvoru lagi.
Nóg um það, Flosi og Rannsí voru hérna hjá okkur núna í síðustu viku, það var að sjálsfsögðu afskaplega gaman að fá þau í heimsókn og mín tillaga er að næsti systkinabarnapúkahittingur verði hér á Vopnafirði. Það er aldrei að vita nema eitthvað verði til á grillið og jafnvel gæti hugsast að örlítið bakkelsi leynist á góðum stað í kotinu. Svo get ég líka boðið upp á fría líkamsrækt hérna heima fyrir, þið getið séð líkamsræktaraðstöðuna á einni myndinni sem fylgir pistlinum. Við erum semsagt að gera smá í bakgarðinum hjá okkur og að sjálfsögðu þá er ykkur velkomið að taka þátt í því (samt ekki skilyrði).
Sumarfrí tökum við okkur væntanlega í ágúst og hyggjumst þá leggja land undir dekk og fara með okkar fellihýsi suður norður og vestur. Ætli við endum svo ekki á því að bruna austur aftur í endaðan ágúst. Annars er þetta ekkert niðurnjörvað og verður frjálslega farið með ferðaáætlun, stefnum reyndar mjög ákveðið á “Fiskidaginn mikla” á Dalvík. Við fórum í fyrra og húkkuðumst algjörlega á þetta. Hittum hana Jónu dóttur Stellu og Adda þar mjög óvænt, erum reyndar alltaf að hitta hana óvænt hér og þar um landið.
Magga og Jóna Guðný eru úti í Danmörk akkúrat núna og koma heim þann 27. Alveg æðislegt heyrist okkur á þeim. Þær koma síðan af og til til okkar í sumar, gaman, gaman. Magga er búin að fá kennarastöðu við Oddeyrarskóla á Akureyri þannig að þar virðist ætla að verða hennar samastaður alla vega fyrst um sinn. Jóna og fjölskylda eru í Hveró og blómstra þar að sjálfsögðu, við eigum von á þeim í júlí einhverntíman, gaman, gaman.
Ég setti myndir af húsinu okkar ykkur til glöggvunar þegar þið komið í heimsókn. Munið bara að láta vita þannig að einhver sé nú heima.
Sem sagt, allt gott hjá okkur og vonandi ykkur líka,
Gunnar Smári og Stína.