mánudagur, desember 22, 2008

Jólakveðjur úr Melgerði 10

Kæru systkini og frændfólk!
Þá eru nú jólin að nálgast enn einusinni eins og óð fluga, svo tíminn er orðinn knappur til að koma út öllum jólakortunum sem maður vildi sent hafa. En þá kemur nú þessi bloggsíða okkar aldeilis að góðum notum svona ef einhverjir eru enn að lesa hana. Við hérna í Melgerðinu sendum ykkur öllum nær og fjær, til sjávar og til sveita okkar innilegustu jóla og nýjárskveðjur með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári.
Af okkur er það helst að frétta að við tvö; gamlingjarnir, verðum hér á fróni í ár, enda voru bæði jól og áramót haldin í Noregi í fyrra. Í ár verða Hulda og Max fjarri góðu gamni því þau eru farin til Þýskalands ásamt Elínu litlu og verða þar fram yfir áramót. Árni aftur á móti er kominn heim í jólafrí frá London, en skólinn hans byrjar ekki aftur fyrr en þann 13. janúar. Við munum því vera ýmist hjá Elsu í Grundarlandi, eða öll hérna heima í Melgerðinu yfir jóladagana.
Vona svo bara að sem flestir haldi áfram að nota þessa litlu samskiptasíðu okkar svo að kveðjur og smá fréttapistlar komist til skila þegar við sendum það inn.
Bestu jólakveðjur frá okkur öllum,
Hidda Herjolf og Árni
Melgerði 10 Reykjavík.

sunnudagur, september 28, 2008

Pistill að austan

Sælt veri fólkið!
Kominn tími á að hreyfa við lyklaborðinu og koma einhverju frá sér. Frá því að ég bullaði einhverju hér inn síðast hefur örugglega margt gerst, bæði í okkar lífi og örugglega líka í ykkar lífi sem gaman væri að heyra af.
Af okkur Stínu er allt gott að frétta, við kúrum hér tvö í kotinu, fáum að vísu barnabörnin í heimsókn af og til og þá er nú kátt í kotinu. Ekki svo að skilja að okkur leiðist svona tveimur saman, það er bara alltaf svo yndislegt að fá þær í heimsókn.
Við komum nokkuð vel undan sumri, hefði mátt vera sólríkara hér á austurhorninu en svona er það nú bara við ráðum þessu víst ekki þó ótrúlegt megi virðast. Ég skipti sumarfríinu mínu í tvennt að þessu sinni, við vorum hérna heima fyrripartinn og sinntum bústörfum eins og vera ber, Magga og Jóna Guðný komu til okkar og síðar Jóna, Margrét Ólafía og Gummi þannig að sá hluti var alveg frábær, seinnihlutann vorum við í Hveragerði hjá Jónu og fjölskyldu og að sjálfsögðu var sá hluti ekki síðri.
Við söknum þess svolítið að hafa ekki brugðið okkur vestur í sumar því eftir því sem Ella segir þá var víst alveg geggjað veður þar, berjaspretta með ólíkindum og mannlíf með miklum blóma. Ég held reyndar að hún hafi verið að ljúga að mér því það skýtur svolítið skökku við að í öllu þessu gósen tíðarfari þá virðast allir vera einhverstaðar annarstaðar, Tóta í Boston, Sigga í Kaupmannahöfn og guð má vita hverjir fleiri af ættboganum á flækingi um allan heiminn. Við bíðum spennt eftir smásögunum frá henni Siggu og vonandi frá öðrum flökkurum ættarinnar, hvort sem það er af flakki innan eða utan lands.
Að öðru, var ekki meiningin að hafa ættarmót (hitting) einhvern tíman fljótlega á næsta ári eða kannski bara á því þarnæsta. Gott væri að fá að vita það í tíma svo að afsakanir á borð við, „ég gat ekki fengið frí með svona skömmum fyrirvara“ verði ekki til þess að draga úr mætingu.

Ekki meira að sinni,
Verið nú dugleg að skrifa inn pistla
Kv,
Gunnar og Stína

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Er bara ekkert í gangi hérna...hvað áetta eiginlega að þýða!!!

Sæl og bless öll nær og fjær.

Það er kannski best, ef maður vill hafa virka blogg síðu að gera eitthvað í málunum. Síðasta færsla um páskana. Gengur bara ekki.

Sko.

Ef þið hafið ekki frétt það þá er ég, Sigga Þrastar flutt til Kaupmannahafnar. Ég var með þetta á "to do" listanum mínum í mörg ár. Reyndar ekki endilega Danmörku bara að búa í útlöndum. Og þegar vinkona mín úr RVK sendi mér sms síðasta vor og bað mig að koma með sér hló ég bara og hálfpartinn vísaði þessu á bug, en samt blundaði þetta í mér.

Þegar fyrirtækið sem ég var að vinna hjá, A4, ákvað að loka sá ég mér leik á borði og kýldi á þetta. Lalli var ekki tilbúinn að koma með þannig að ég skildi hann og Kristófer án þess að skilja við hann. Við Karólín erum að lenda í allskonar ævintýravesenum eins og við sem erum í þessari fjölskyldu þar sem "allt sem mögulega getur farið úrskeiðis gerir það" könnumst við og ég á vonandi eftir að vera dugleg að skrá litlar sögur af okkur. Þangað til bið ég að heilsa ykkur öllum. Reyni að senda nokkra myndir sjáum til hvernig það gengur..

laugardagur, apríl 05, 2008

Páskar í höfuðstöðvunum fyrir vestan


Blessaðir allir Hlíðarvegspúkar nær og fjær. Nýafstaðnir páskar voru að venju himneskir, vel mætt heim í kotin og veðráttan auðvitað eins og eftir pöntun Ferming á fimmtudag, í Bolungarvíkur kirkju ( Björgúlfur Egill Pallason Elluson) sem fór hið bezta fram, utan þess að veðrið þann daginn var undantekningin sem sannaði regluna um páskaveðrið, sem sé stórhríð í sinni beztu mynd og ekki laust við að kvíða setti að fólki sem átti börn og barnabörn á leiðinni akandi , en allir komust þá heilu og höldnu "Heim". Menn tóku síðan upp hefðbundna páskaiðju, í sól og snjá hvort sem það var skíðabrölt, brettabrölt kaffi og matarbrölt eða bara letibrölt. nema hvað á laugardag kviknaði í kolli Tótu sú snjalla uppljómun ( Ella var alveg saklaus), að safna saman öllum þeim Hlíðarvegspúkum sem á staðinn voru komnir, ásamt heimamönnum. bjóða þeim upp á kaffi (gos) og vöfflur í Kivanishúsinu á Hafrafellsskeiði. Ekki er að orðlengja það, að allir brugðust púkar glaðir við, og eftir skíðaferðir, gönguferðir og fl. fjölmennti liðið á staðinn, utan tveggja, sem nauðsynlega þurftu að fylgjast með ensku knassspyrrnunni! ( framburður Bjarna Fel) Ef vel tekst til koma hérna nokkrar myndir af samkomunni, ásamt þeirri frómu ósk að ekkert lát verði á framgangi og ferðum Hlíðarvegspúkanna til heimahaganna , vetur, sumur, vor og haust. Kveðjur í mörgum lögum í allar áttir. Bloggið nú hver sem betur getur -, hvernig er með áætlanir um ættarmót ?


Gunnar, Dagný, Sigga og Þórir Tótu og Tóta sjálf.














Gunnar Tótu og Heiða













Einar Halldórsson og Tóta, Dagnýjar Tótu.













Þórir Tótu, Flosi Adda og Einar Halldórs













Benedikt Þórdísar Ellu.













Björgúlfur Palla Ellu áðurnefndur fermingardrengur og Palli Ellu











Palli Ellu og Ingibjörg Júlíanna, Önnu Ólafíu, Öllu Ellu.













Þórdís Ellu, Ragnheiður Þóris Tótu og Palli Ellu.












Anton Dagnýjar Tótu.

föstudagur, febrúar 01, 2008

Ferðalangar

Hæ Þórdís ;o)
ég ætla að nota okkar prívat blogg til að tilkynna þér komu okkar til landsins.
Valborg amma hans Tjörva lést um síðustu helgi og verður útförin á miðvikudaginn í næstu viku. Við komum, öll hersingin, á mánudagsmorguninn og verðum í rúma viku.
Það væri gaman að fá að sjá framan í eitthvað af ættingjum manns svona ef tækifæri gefst.
Verðið þið á svæðinu?
Kata