miðvikudagur, júlí 22, 2009

Munið að panta gistingu!

Kæru ættingjar!
Ég vil bara minna ykkur á að það er vissara að vera ekki síðastur að panta sér gistinguna. Við ætlum að reyna að koma því þannig fyrir að fjölskyldufólk með börn geti verið á sér-merktu tjaldstæði sem aðeins er ætlað þeim sem eru með börn, og/eða vilja meiri rólegheit og að fara snemma í háttinn. Ég fékk það líka staðfest í dag, að öll verð sem upp voru gefin fyrr á árinu standast, þannig að engin auka útfjöld ættu að koma í ljós eins og stundum vill verða. Ég gleymdi annars að taka það fram að maturinn á laugardagskvöldið er steikt lambalæri í ofni og er ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. Það er líka ókeypis í sundlaugina, svo munið að taka með sundföt svo enginn þurfi að notast við pappakassa um sig miðjan eins og einn fjölskyldumeðlimur forðum daga. Svo er líka hljóðkerfi á staðnum, þannig að ef sönghópar eða aðrir listamenn eða ræðumenn innan fjölskyldunnar luma á einhverju gleðispreðandi, er bara um að gera að leyfa hinum að njóta. Sérstaklega skora ég á yngstu kynslóðina að leyfa ljósi sínu að skína sem skærast í leikjum, söng , dansi eða hverju sem gleðja kann okkur gamlingjana.
Sjáumst!
Hidda.

fimmtudagur, júlí 16, 2009

Það styttist í ættarmót

Sæl verið þið öll til sjávar og sveita (oghvarsemþiðeruðniðurkominsvosem).

Það styttist óðfluga í ættarhitting og nú ætti það að vera nokkuð ljóst hversu fjölmennt verður. Spurning hvort einhver hefur haldið utan um það. Við Stína ætlum allavega að mæta, veit ekki hvort afkvæmin og viðhengin koma. Jóna, Gummi og Margrét Ólafía verða nýkomin frá Svíþjóð og óvíst hvort þau sjá sér fært að framlengja fríið sitt, Magga (Jóna Guðný og Rolf) komin á seinni hluta meðgöngunnar og því ekki gott að segja til um hvort þau treysta sér til að leggja land undir hjól af þeim sökum. Þetta verður víst allt að koma í ljós.
Að öðru, við fengum heimsókn um daginn, Alla, Sighvatur, Erla og Davíð kíktu í kaffi til okkar. Fórum og skoðuðum Bustafellsbæinn, þar var mikið um að vera, Safnadagurinn svokallaði og mikið líf í gamla bænum. Ég held að þeim (eins og svo mörgum öðrum) hafi þótt frekar gaman að koma þarna við, allavega þótti okkur vænt um að fá þau til okkar og njóta samvistanna sem hefðu þó mátt vera lengri.
Ekki meira að svo stöddu,

Bíðum spennt eftir því að hitta ykkur sem flest á ættarmótinu,
Kv,
Gunnar og Stína

þriðjudagur, febrúar 24, 2009

Ættarmótið staðfest og ákveðið!

Sæl verið þið aftur nær og fjær, til sjávar og sveita! Jæja þá er þetta nú allt ákveðið varðandi ættarmót afkomenda Jóns Valdimarssonar og Sigríðar Ásgeirsdóttur. Staðurinn er Reykjanes við Ísafjarðardjúp, en þar hafa sum okkar hittst áður og höfum ágæta reynslu af. Dagsetningin er 7.-9. ágúst. Eins og þið hafið eflaust frétt, þá voru nokkuð margir sem töldu sig ekki getað komið um verslunarmannahelgina sem var áður frátekin fyrir okkur í Sælingsdal og því var planinu breytt. Hér á eftir set ég því inn upplýsingar fyrir ykkur um umsamið verð á gistingu og tjaldstæðum og ég tek það fram að hver og einn verður að panta herbergi/ tjaldstæði og eða aðra þjónustu fyrir sig, þannig er það einfaldast og enginn einn aðili er gerður ábyrgur fyrir pöntunum. Bara taka skýrt fram að hann/hún tilheyri hópnum sem helgin er frátekin fyrir.En ef þið viljið tryggja ykkur gistingu innandyra, er betra að panta fyrr en seinna því við rennum svolítið blint í sjóinn með hversu fjölmennt þetta verður.

Hér kemur svo verðið:
Einstaklingsherbergi uppábúið kr. 4.500,-
2 manna herbergi uppábúið kr. 8.500,-
Svefnpokapláss kr. 3.000,- pr.rúm
tjaldstæði; fyrsta nóttin kr. 1500,- hver aukanótt 500,-
óháð fjölda í tjaldi.
Sameiginleg máltíð á laugardagskvöldinu kostar 3.200,-
Það er ókeypis í sundlaugina.

Forstöðumaður staðarins heitir Gunnar Línberg sem tekur við herbergjapöntunum. Síminn þar er; 456 4844

Varla þarf að taka það fram að ALLIR sem hafa einhverntíma tengst fjölskyldunni, þ.e. fyrrverandi, núverandi ævarandi eða tilvonandi makar og meðlæti eru velkomnir!
Kveðjur og knús í allar áttir,

Hidda, sími 5680021 og 8693079. gunnhildurjons@gmail.com
Síminn hjá Þórdísi Einars er 5645066 og 8621831 thordisster@gmail.com
Svo er netfangið hjá Margréti Gunnhildi Gunnarsdóttur sem líka hefur boðist til að vera hjálpleg, mgg@akmennt.is

mánudagur, febrúar 09, 2009

Ættarmót í pípunum

Það hringdi í mig lítill fugl (eða frænka) og bað mig um að taka þátt í að undirbúa ættarmót í sumar.
Hún var búin að athuga með laust pláss á Laugum í Sælingsdal og sá staður er laus um verslunarmannahelgina.
Mig langar bara að athuga hvort menn eru spenntir fyrir ættarmóti og hvort þessi tími hentar betur eða verr og hvaða staðir væru þá á óskalistanum ef þessi er ekki hentugur.
Endilega setjið athugasemd, sendið póst á mig á thordisster@gmail.com eða á Hlíðarvegspúkagrúppuna á fésbókinni ef menn eru komnir þar inn. Nú og ef menn eru ekki með tölvu þá má alltaf hringja í "litla fuglinn" aka Hiddu frænku.
Og koma svoooo!
Kveðja
Þórdís