Kæru ættingjar og tilheyrandi!
Við Stína viljum byrja á því að þakka fyrir alveg stórkostlega samverustund í Reykjanesi í sumar. Það er fátt betur
fallið til að hrista saman fjölskyldur en svona samfagnaðir.
Nú fer í hönd hundraðasta og tíunda aldursár afa Jóns. Af því tilefni blásum við til afmælisveislu helgina 9. – 11. júlí n.k. en þann 10. er afmælisdagur afa Jóns. Eins og margir þeirra sem voru í Rykjanesi í sumar muna, þá var ákveðið að ég skyldi halda utan um afmælið hérna á Vopnafirði. Skemmst er frá að segja að ég er búinn að festa aðstöðu í Syðri-Vík í Vopnafirði (slóðin er http://www.sveit.is/FarmDetails.aspx?No=490) og nú er um að gera að fara að láta okkur vita um þátttöku. Fjórtán manns geta sofið í gistirými þarna sem er í fyrrverandi fjárhúsi og hlöðu, fínasta aðstaða og hægt að leigja sér rúmföt. Þá er aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla eins og við þurfum. Fyrir þennan tíma og þessa aðstöðu (þ.e. gistinguna og tjaldsvæðið)þurfum við að greiða 60.000.- óháð fjölda þeirra sem þarna verða. Fyrir utan þetta þá eru tvö sumarhús þarna á svæðinu sem einnig er hægt að fá leigt. Síðan er spurning um hvort stemming er fyrir sameiginlegri máltíð á laugardagskvöldinu. Kostnaður við það yrði að sjálfsögðu utan við aðstöðugjaldið.
Þema afmælisins verður, „skemmtilegar sögur af afa og ömmu“ í ykkar orðum. Þið getið sett niður á blað og flutt sjálf eða fengið einhvern annan til þess að flytja fyrir ykkur ef þið treystið ykkur ekki til.
Þátttöku tilkynningar ásamt gistingarmáta væri gott að fá sem allra fyrst á netfangið gusgu@simnet.is því að auðvitað er grunnurinn að því að þetta geti orðið sá að sem allra flestir mæti. Hljóðfæri eru vel þegin í afmælið og flott væri að stofna ættarhljómsveit þarna og gildir þá einu hvort um ættingja eða tilheyrandi er að ræða.
Endilega látið okkur vita sem allra fyrst,
Bestu kveðjur,
Gunnar Smári og Stína
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)