sunnudagur, maí 20, 2007

Afmælisdagatal

Ég hef verið að föndra við að búa til afmælisdagatal fyrir Hlíðarvegspúka og þeirra maka, í dag 20. maí eiga til dæmis Herjolf hennar Hiddu og Ríkharður hennar Birnu Láru afmæli samkvæmt mínum bókunum. Til hamingju báðir tveir.
Þar sem þetta eru svolítið margir afmælisdagar þá var ég að reyna að létta skriftuna aðeins og þá fór allt fjandans til og síðan neitaði að birta þá afmælisdaga sem hún átti að birta. Er enn að vinna í kerfinu þannig að ekki láta ykkur bregða þó það komi eitthvað skrítið í hausinn fyrir neðan fyrirsögnina. :)
Einnig ef það koma afmæliskveðjur til einhverra sem eiga alls ekki afmæli, eða þá öfugt að ef einhver fær ekki afmæliskveðju þá má gjarnan láta vita, ég verð þá bara að skammast mín ægilega og laga málið.
Svo kemur ættartréð vonandi fljótlega inn fyrir þá sem eru orðnir óþolinmóðir.
Kveðja
Þórdís Hlíðarvegspúkasíðuráðherra.

Sigga Þrastar komin inn!!!

Hæ allar frænkur og allir frændur nær og fjær.



Þá er loksins búið að hleypa manni inn. Eftir töluvert japl og jaml við þórdísi féllst hún loksins á að hleypa mér inn. Ég hef fylgst með póstunum frá þeim sem hafa tjáð sig og haft gaman af.

Næst þegar ég hef tíma ætla ég að segja ykkur frá mér og mínum.

Til hamingu til Eydísar og okkar allra með nýasta Hlíðarvegspúkann hún sver sig svo sannarlega í ættina.

Ok bless í bili, meira seinna.

Ég ætla að reyna að fá myndir hjá Einari frá afmælinu og setja þær inn fyrir ykkur. Kannski gæti hann meira að segja gert það sjálfur!!!

Allavega bless.

föstudagur, maí 18, 2007

jæja...

Nú fer ég að búa til krassandi kjaftasögur um þetta leyndardómsfulla partý sem enginn vill tjá sig um.
Aðrir sem finnast þeir vera útundan, endilega takið þátt.

Fríða dansaði tpplaus uppi á borði.
Einar sofnaði undir borðinu klukkan 9:30.
Halldór Antons stal nýju gröfunni hans Einars og fór á rúntinn.
Anna sást yfirgefa partýið með hávöxnum gráhærðum manni.

Ég get ekki búið til meira því ég veit ekki einu sinni hverjir voru í partýinu.

Kata
-útundan

Höddi fer á flakk...



Jæja gott fólk, þá er komið sumar og skólinn að klárast. Af því tilefni ætlum við Álfheiður Kristín að fara suður til Reykjavíkur þann 30./05. og dvelja í viku tíma. Þar sem að um er að ræða heila viku, þá finnst mér líklegt að við reynum að hitta ættingja á þessu svæði, og kannski með einhverju skipulagi (sem væri alveg nýtt hjá mér :D ) Ég veit hvar bræður mínir búa, og Hidda, en þar með er það upptalið :(. Myndirnar: Þessi mynd af Álfheiði er tekin fyrir nokkrum dögum, þegar hún var fengin í módelstörf fyrir Dyngjuna handverkshús.. Myndin af kallinum er tekin við Illugastaði í Fnjóskárdal síðasta sumar (P.s.Ég er búinn að raka mig)

miðvikudagur, maí 09, 2007

Til hamingju Eydís og Tóti með litlu dömuna!

Frétti af fæðingunni, innilega til hamingju Eydís! Nú er bara að bíða eftir myndum af frumburðinum. Kveðjur héðan frá Svíþjóð. Hulda og Elín Snæfríður (organdi á gólfinu).

þriðjudagur, maí 08, 2007

Er hægt að fa frettir af partyinu?

Fyrir okkur sem komust ekki.

föstudagur, maí 04, 2007

Til hamingju Einar Halldórsson!

Hlíðarvegspúkinn Einar Halldórsson verður fimmtugur þann 7. mai og ætlar að gleðjast með vinum sínum og ættingjum á morgun laugardag. Í því tilefni langar mig til að senda honum smá afmæliskveðju í bundnu máli. Ég vona að sem flestir geti tekið undir fjöldasöng það kvöld við lagið "Hann var sjómaður dáðadrengur"

Hann Einar er ofursætur
ég hef á honum miklar mætur
hann er fimmtugur nú,
hann er flottari en þú
hann er frjáls hvar hann sefur um nætur.

hann er dáðadrengurinn góði
hann er dáður í kvennastóði
og á lausu hann er, oft í laumi hann fer
inní landhelgi þeirra í hljóði.

Á gröfunni er gríðarsnarpur
já hann getur það þessi garpur
þegar drynur um jörð er hann dregur til svörð
þar fer drengurinn knár og skarpur.

Ó svo sterkur og stæðilegur
hann að standast er enginn vegur
"elsku Einar minn kær" kvakar örvingluð mær
hún er ástsjúk og rómurinn tregur.

En hann Einar það allt af sér stendur
það er alls ekki furð´ann sé kenndur
við styrkleika og þor, það er staðhæfing vor,
hann á staðfasta a-aðdáendur.

Við Hlíðarvegspúkar fljótt sjáum
hvern við sérlega virðum og dáum
hvert um foldir hann fer, okkar fyrirmynd er
hann er öðlingur, einn af fáum.

Nú afmælissönginn við syngjum
og sérstökum glösum klingjum
hann er fimmtugur nú, hann er flottari en þú
hann er fremstur af sínum jafningjum.
(Hidda frænka)
(Hidda frænka)

Reykjavikurbuar og nagrennislið


Hæ allir
Bara að láta vita að sonur minn og eiginmaður eru á leiðinni til Íslands í stutta heimsókn. Þeir lenda í fyrramálið og munu líklega sjást við hina ýmsu sundstaði og útsölustaði SS-pylsna um Reykjavík og nágrenni fram á miðvikudag. Tjörvi hefur ekki náðst ógrettur á mynd í áraraðir en hér til hægri er Kári Karl, fylgdarmaður hans.
Við mæðgurnar (2 og 1/2) ætlum að hafa það náðugt heima á meðan við erum lausar við þessa morgunhana. Hér verður sofið út, vakað frameftir og ekki leikið í sandkassanum í 5 heila daga ! Ætli þurfi nokkuð að sópa eða þvo þvott allan þann tíma.
Þið kastið á þá kveðju frá mér er þið rekist á þá.
Kata.