miðvikudagur, júlí 22, 2009

Munið að panta gistingu!

Kæru ættingjar!
Ég vil bara minna ykkur á að það er vissara að vera ekki síðastur að panta sér gistinguna. Við ætlum að reyna að koma því þannig fyrir að fjölskyldufólk með börn geti verið á sér-merktu tjaldstæði sem aðeins er ætlað þeim sem eru með börn, og/eða vilja meiri rólegheit og að fara snemma í háttinn. Ég fékk það líka staðfest í dag, að öll verð sem upp voru gefin fyrr á árinu standast, þannig að engin auka útfjöld ættu að koma í ljós eins og stundum vill verða. Ég gleymdi annars að taka það fram að maturinn á laugardagskvöldið er steikt lambalæri í ofni og er ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. Það er líka ókeypis í sundlaugina, svo munið að taka með sundföt svo enginn þurfi að notast við pappakassa um sig miðjan eins og einn fjölskyldumeðlimur forðum daga. Svo er líka hljóðkerfi á staðnum, þannig að ef sönghópar eða aðrir listamenn eða ræðumenn innan fjölskyldunnar luma á einhverju gleðispreðandi, er bara um að gera að leyfa hinum að njóta. Sérstaklega skora ég á yngstu kynslóðina að leyfa ljósi sínu að skína sem skærast í leikjum, söng , dansi eða hverju sem gleðja kann okkur gamlingjana.
Sjáumst!
Hidda.

fimmtudagur, júlí 16, 2009

Það styttist í ættarmót

Sæl verið þið öll til sjávar og sveita (oghvarsemþiðeruðniðurkominsvosem).

Það styttist óðfluga í ættarhitting og nú ætti það að vera nokkuð ljóst hversu fjölmennt verður. Spurning hvort einhver hefur haldið utan um það. Við Stína ætlum allavega að mæta, veit ekki hvort afkvæmin og viðhengin koma. Jóna, Gummi og Margrét Ólafía verða nýkomin frá Svíþjóð og óvíst hvort þau sjá sér fært að framlengja fríið sitt, Magga (Jóna Guðný og Rolf) komin á seinni hluta meðgöngunnar og því ekki gott að segja til um hvort þau treysta sér til að leggja land undir hjól af þeim sökum. Þetta verður víst allt að koma í ljós.
Að öðru, við fengum heimsókn um daginn, Alla, Sighvatur, Erla og Davíð kíktu í kaffi til okkar. Fórum og skoðuðum Bustafellsbæinn, þar var mikið um að vera, Safnadagurinn svokallaði og mikið líf í gamla bænum. Ég held að þeim (eins og svo mörgum öðrum) hafi þótt frekar gaman að koma þarna við, allavega þótti okkur vænt um að fá þau til okkar og njóta samvistanna sem hefðu þó mátt vera lengri.
Ekki meira að svo stöddu,

Bíðum spennt eftir því að hitta ykkur sem flest á ættarmótinu,
Kv,
Gunnar og Stína