Sæl verið þið öll til sjávar og sveita (oghvarsemþiðeruðniðurkominsvosem).
Það styttist óðfluga í ættarhitting og nú ætti það að vera nokkuð ljóst hversu fjölmennt verður. Spurning hvort einhver hefur haldið utan um það. Við Stína ætlum allavega að mæta, veit ekki hvort afkvæmin og viðhengin koma. Jóna, Gummi og Margrét Ólafía verða nýkomin frá Svíþjóð og óvíst hvort þau sjá sér fært að framlengja fríið sitt, Magga (Jóna Guðný og Rolf) komin á seinni hluta meðgöngunnar og því ekki gott að segja til um hvort þau treysta sér til að leggja land undir hjól af þeim sökum. Þetta verður víst allt að koma í ljós.
Að öðru, við fengum heimsókn um daginn, Alla, Sighvatur, Erla og Davíð kíktu í kaffi til okkar. Fórum og skoðuðum Bustafellsbæinn, þar var mikið um að vera, Safnadagurinn svokallaði og mikið líf í gamla bænum. Ég held að þeim (eins og svo mörgum öðrum) hafi þótt frekar gaman að koma þarna við, allavega þótti okkur vænt um að fá þau til okkar og njóta samvistanna sem hefðu þó mátt vera lengri.
Ekki meira að svo stöddu,
Bíðum spennt eftir því að hitta ykkur sem flest á ættarmótinu,
Kv,
Gunnar og Stína
fimmtudagur, júlí 16, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gott að heyra elsku Gunnar minn, ég vona að við fáum að sjá sem flesta úr þinni fjölskyldu, allavega alla þá sem nú þegar eru sýnilegir. Mundu bara að taka gítarinn með!
Skrifa ummæli