miðvikudagur, júlí 25, 2007
Yndisleg ferð til Ísó
Við systur, ásamt öllum (þremur)afkomendum okkar, drifum okkur í ferð á Vestfirðina. Að sjálfsögðu var endað á Ísafirði og gist hjá Ellu ættmóður, sem hýsti, fæddi, klæddi og vöfflaði óteljandi marga unga í fleiri daga, að sjálfsögðu í yndislegu veðri. Palli og Berglind voru þar með sína unga, Laufey og Flosi voru oft með eina af tveimur splunkunýjum barnabarnastelpum á arminum og þetta varð allt eitt allsherjar kinnaklíperí. Tóm sæla. Eitt kvöldið var farið með Einari Sterka út í Fljótavík að hitta Eddu Péturs og börn, annað kvöldið var grillað í Ellugarði en á því þriðja buðu Dagný, Halldór og Lalli til sín í mat. Dögunum var eytt í þrítugsafmæli til Önnu Ólafíu og menningarferð til Öllu þar sem Elsa þjóðfróða var alveg að tapa sér með frænku sinni yfir hannyrðartipsum. Hápunkturinn var þó kannski lautarferðin að fossinum úr Buná þar sem við lágum í berjamó við "lautina okkar Tótu" og sleiktum sólina. Það er gott að vera til þegar Ella og Laufey ættmæður hafa pláss og tíma fyrir óþolandi unga.
Við þökkum hjartanlega fyrir okkur.
Elsa og Hulda Herjolfsdætur
Við þökkum hjartanlega fyrir okkur.
Elsa og Hulda Herjolfsdætur
.
mánudagur, júlí 16, 2007
Smá mynd af frændum og frænkum

Fyrst það er ekkert um að vera hérna þá sendi ég mynd af þeim frænkum og frændum mínum sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Talið frá vinstri: Marta María Harðardóttir, Matthildur María Pálsdóttir, Björgúlfur Egill Pálsson, hann heldur á Benedikt mínum, þá kemur Hálfdán Hörður Pálsson og svo á endanum er Einar Gylfi Harðarson.
Kveðja
Þórdís
þriðjudagur, júlí 10, 2007
Óskýrð Sigurðardóttir fædd




Hæ öll,, ég skrifa þetta það þíðir lítið að biðja Flosa hann er í rútu ferð og er einhversstaðar . En hvað með það , það fæddist litil prinsessa þann 1 júli hún var 14 merkur og 49 cm . passlega stór og að sjálfsögðu myndarleg , sendi mynd þegar eg kann. Eydísardóttir dafnar vel og er búin að fá nafn sem er Laufey Dís Þórarinsdóttir og er óskup mikið krútt mjög lik mömmu sinni, ein montin með ömmu börnin sín kv fagraholtbúarnir á 13...
Efri myndirnar eru af Laufeyju Dís og neðri af Siggadóttur og fjölskyldu.
sunnudagur, júlí 08, 2007
Jæja þá erum við nú loksins komin heim í heiðardalinn eftir mánaðardvöl í Haugesund. Hulda og Max voru komin sólarhring á undan okkur með sína litlu Elínu Snæfríði og auðvitað voru amma og afi alveg himinlifandi yfir endurfundunum, enda ekki séð litlu konuna í heila 3 mánuði. Þau ætla að dveljast á Islandi í um það bil mánuð og ef einhver vill hitta þau eru þeir hinir sömu velkomnir hingað í Melgerðið.
Annars for tíminn í Noregi aðallega í að mála húsið og dytta að ýmsu þar eins og gengur, svo við vorum meira og minna hangandi í körfulyftara eða stillas allan tímann. Reyndar getum við státað okkur af mun stærri og flottari líkamsræktaraðstöðu en hann Gunnar smári því þar þarf bæði að hlaupa á eftir rollum og slátturvélum í kílómetravís.
Annars langar mig til að nota þetta tækifæri og senda eina spes-kveðju til Maríönnu ÞórðarogFríðudóttur sem var að útskrifast sem stúdent í gær, aðeins 17 ára gömul.
GLÆSILEGT!
Kv. Hidda.
Annars for tíminn í Noregi aðallega í að mála húsið og dytta að ýmsu þar eins og gengur, svo við vorum meira og minna hangandi í körfulyftara eða stillas allan tímann. Reyndar getum við státað okkur af mun stærri og flottari líkamsræktaraðstöðu en hann Gunnar smári því þar þarf bæði að hlaupa á eftir rollum og slátturvélum í kílómetravís.
Annars langar mig til að nota þetta tækifæri og senda eina spes-kveðju til Maríönnu ÞórðarogFríðudóttur sem var að útskrifast sem stúdent í gær, aðeins 17 ára gömul.
GLÆSILEGT!
Kv. Hidda.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)