Við systur, ásamt öllum (þremur)afkomendum okkar, drifum okkur í ferð á Vestfirðina. Að sjálfsögðu var endað á Ísafirði og gist hjá Ellu ættmóður, sem hýsti, fæddi, klæddi og vöfflaði óteljandi marga unga í fleiri daga, að sjálfsögðu í yndislegu veðri. Palli og Berglind voru þar með sína unga, Laufey og Flosi voru oft með eina af tveimur splunkunýjum barnabarnastelpum á arminum og þetta varð allt eitt allsherjar kinnaklíperí. Tóm sæla. Eitt kvöldið var farið með Einari Sterka út í Fljótavík að hitta Eddu Péturs og börn, annað kvöldið var grillað í Ellugarði en á því þriðja buðu Dagný, Halldór og Lalli til sín í mat. Dögunum var eytt í þrítugsafmæli til Önnu Ólafíu og menningarferð til Öllu þar sem Elsa þjóðfróða var alveg að tapa sér með frænku sinni yfir hannyrðartipsum. Hápunkturinn var þó kannski lautarferðin að fossinum úr Buná þar sem við lágum í berjamó við "lautina okkar Tótu" og sleiktum sólina. Það er gott að vera til þegar Ella og Laufey ættmæður hafa pláss og tíma fyrir óþolandi unga.
Við þökkum hjartanlega fyrir okkur.
Elsa og Hulda Herjolfsdætur
Við þökkum hjartanlega fyrir okkur.
Elsa og Hulda Herjolfsdætur
.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli