
Fyrst það er ekkert um að vera hérna þá sendi ég mynd af þeim frænkum og frændum mínum sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Talið frá vinstri: Marta María Harðardóttir, Matthildur María Pálsdóttir, Björgúlfur Egill Pálsson, hann heldur á Benedikt mínum, þá kemur Hálfdán Hörður Pálsson og svo á endanum er Einar Gylfi Harðarson.
Kveðja
Þórdís
2 ummæli:
gaman að sjá þessar myndir af Ellubarnabörnum. En ég verð að minna á að enginn hefur tilkynnt nýjasta Hlíðarvegspúkabarnaundrið; Óskar hennar Dagnýjar hennar Tótu eignaðist nýlega son og við heimtum frekari upplýsingar og myndir.
Kveðja og hamingjuóskir til Óskars Dagnýjarsonar.
Þetta eru svakalegir glókollar sem koma undan þessu Fagraholts fólki !
Gaman að sjá þessa krakka sem ég hef því miður ekki séð í eigin persónu áður í mörg herrans ár.
Ég skil heldur ekkert í ömmunni nýju að vera ekki búin að grobba sig af minnsta snúllanum sem fæddist 11.júlí. Hann er mikið sætur með stórar kinnar og nefið hans pabba síns.
Mitt kríli bíður ennþá í röðinni, kemur vonandi eftir ca mánuð og þá verður sko sett inn tilkynning hérna og myndir !
Bestu kveðjur úr gufubaðinu í Boston.
Kata
ps. mamma biður örugglega að heilsa af ströndinni.
Skrifa ummæli