mánudagur, desember 24, 2007

Gleðileg jól Hlíðarvegspúkar


Langaði bara að senda ykkur smá jólakveðjur og að sjálfsögðu jólamyndina í ár.
Gleðileg jól öll sömul og hafið það gott yfir hátíðarnar.
Sjáumst svo hress og kát á komandi ári.
Kveðjur úr Kórnum.
Þórdís, Björgvin og Benedikt

föstudagur, desember 07, 2007

Jólakveðja



Heil og sæl, þið sem ennþá kíkið hingað inn af og til
Mig langaði bara að nota þennan vetvang til að senda ykkur jólakveðju, sérstaklega þeim sem lentu ekki á jólakortalistanum mínum í ár. Hérna megin við pollinn er orðið jólalegt um að litast. Hvítur snjórinn hylur, næstum því, græna grasið og brúnu laufblöðin sem ekki náðist að raka upp áður en það snjóaði og fraus allt í einu. Ljósin komin upp fyrir utan og tréð í stofunni að amerískum sið. Set með mynd af örverpinu og systkinum hennar. Þeir sem fá eins mynd í jólakorti verða bara að sjá sömu myndina tvisvar.

Kv Kata og co Dedham, Massachusetts

sunnudagur, september 09, 2007

Nyjasti Hliðavegspukinn


Þeir hrynja inn nýju púkarnir og hérna er mynd af mínu framlagi. Við mæðgur komum heim í gær og Anja Valborg Perry Tjörvadóttir er með afbrigðum góð og yndisleg. Grætur ekki nema þegar einhver dirfist að skipta á henni. Stóru systkinin taka henni mjög vel og algengasta setningin á þessu heimili er "Oh, hún er svoooo sæt!". Því mótmælir heldur enginn af okkur hinum.
Þrátt fyrir að vera talin "of"bökuð var hún bara 13.5 merkur og 50 cm, alveg mátulega stór fyrir mig. Fæðingin gekk vel, svo vægt sé tekið í árina margfrægu. Tók 32 mínútur frá fyrsta vonda verk og allir sluppu án teljandi áverka.
Kveðjur frá Boston.
Kata, Tóta og afkomendur.

föstudagur, september 07, 2007

Anja Valborg (Tjörvadóttir Perry) Kötudóttir

Hamingjuóskir til allra Hlíðarvegspúka nær og fjær!

Hún litla Anja Valborg leit dagins ljós í gær, þann 6. september 2007. Það verður að segjast eins og er að hún hafði haldið fjölskyldunni í spenningstreyju (þó ekki spennitreyju) í heila viku og rúmlega það, því henni var ætlað að koma og heilsa uppá okkur þann 28. ágúst.
Nú bíðum við bara spennt eftir að heyra nánari fréttir frá Kötu, Tjörva eða Tótu ,af og um stærð, lengd og lögun hinnar litlu nýbökuðu Hlíðarvegspúkadömu.

Var hún stærri eða minni en minn,-... þinn, -... eða hinn -............................

miðvikudagur, ágúst 22, 2007


Reyni aftur með mynd, vona að hún komi núna. Kv. Dagný

Hæ frændur og frænkur.

Jaja þá er ég komin inn. Gunnar Smári kom í heimsókn í gær og sýndi mér síðuna. Mér líst vel á þetta, gaman að skoða myndirnar og skemmtilegt að geta talað við alla í einu. Vona bara að fleyri bætist í hópinn. Sendi ykkur myndir af nýjasta barninu í mömmu legg. Þetta er strákur Óskarsson sem fæddist þann 11. júlí 07. Hann hefur ekki fengið naf enn, en það er víst á leiðinni. Meira seinna. Kossar og knús til allra og til hamingju Siggi og Eydís með nýju hlutverkin ykkar.

mánudagur, ágúst 06, 2007

Hrefna Áróra Sigurðardóttir

Við hjónin vorum viðstödd skírn í gær, sunnudaginn 5. ágúst á Hellu. Þar var skírð lítil dama,
dóttir Nathalie og Sigurðar Flosasonar. Hún fékk nafnið Hrefna Áróra og við óskum foreldrunum til hamingju.
Kv. Hidda.

miðvikudagur, júlí 25, 2007

Að vestan

Þeta er alveg ótrtúlega flókið dæmi

Yndisleg ferð til Ísó


Við systur, ásamt öllum (þremur)afkomendum okkar, drifum okkur í ferð á Vestfirðina. Að sjálfsögðu var endað á Ísafirði og gist hjá Ellu ættmóður, sem hýsti, fæddi, klæddi og vöfflaði óteljandi marga unga í fleiri daga, að sjálfsögðu í yndislegu veðri. Palli og Berglind voru þar með sína unga, Laufey og Flosi voru oft með eina af tveimur splunkunýjum barnabarnastelpum á arminum og þetta varð allt eitt allsherjar kinnaklíperí. Tóm sæla. Eitt kvöldið var farið með Einari Sterka út í Fljótavík að hitta Eddu Péturs og börn, annað kvöldið var grillað í Ellugarði en á því þriðja buðu Dagný, Halldór og Lalli til sín í mat. Dögunum var eytt í þrítugsafmæli til Önnu Ólafíu og menningarferð til Öllu þar sem Elsa þjóðfróða var alveg að tapa sér með frænku sinni yfir hannyrðartipsum. Hápunkturinn var þó kannski lautarferðin að fossinum úr Buná þar sem við lágum í berjamó við "lautina okkar Tótu" og sleiktum sólina. Það er gott að vera til þegar Ella og Laufey ættmæður hafa pláss og tíma fyrir óþolandi unga.
Við þökkum hjartanlega fyrir okkur.
Elsa og Hulda Herjolfsdætur

.

mánudagur, júlí 16, 2007

Smá mynd af frændum og frænkum


Fyrst það er ekkert um að vera hérna þá sendi ég mynd af þeim frænkum og frændum mínum sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Talið frá vinstri: Marta María Harðardóttir, Matthildur María Pálsdóttir, Björgúlfur Egill Pálsson, hann heldur á Benedikt mínum, þá kemur Hálfdán Hörður Pálsson og svo á endanum er Einar Gylfi Harðarson.
Kveðja
Þórdís

þriðjudagur, júlí 10, 2007

Óskýrð Sigurðardóttir fædd






Hæ öll,, ég skrifa þetta það þíðir lítið að biðja Flosa hann er í rútu ferð og er einhversstaðar . En hvað með það , það fæddist litil prinsessa þann 1 júli hún var 14 merkur og 49 cm . passlega stór og að sjálfsögðu myndarleg , sendi mynd þegar eg kann. Eydísardóttir dafnar vel og er búin að fá nafn sem er Laufey Dís Þórarinsdóttir og er óskup mikið krútt mjög lik mömmu sinni, ein montin með ömmu börnin sín kv fagraholtbúarnir á 13...

Efri myndirnar eru af Laufeyju Dís og neðri af Siggadóttur og fjölskyldu.

sunnudagur, júlí 08, 2007

Jæja þá erum við nú loksins komin heim í heiðardalinn eftir mánaðardvöl í Haugesund. Hulda og Max voru komin sólarhring á undan okkur með sína litlu Elínu Snæfríði og auðvitað voru amma og afi alveg himinlifandi yfir endurfundunum, enda ekki séð litlu konuna í heila 3 mánuði. Þau ætla að dveljast á Islandi í um það bil mánuð og ef einhver vill hitta þau eru þeir hinir sömu velkomnir hingað í Melgerðið.
Annars for tíminn í Noregi aðallega í að mála húsið og dytta að ýmsu þar eins og gengur, svo við vorum meira og minna hangandi í körfulyftara eða stillas allan tímann. Reyndar getum við státað okkur af mun stærri og flottari líkamsræktaraðstöðu en hann Gunnar smári því þar þarf bæði að hlaupa á eftir rollum og slátturvélum í kílómetravís.
Annars langar mig til að nota þetta tækifæri og senda eina spes-kveðju til Maríönnu ÞórðarogFríðudóttur sem var að útskrifast sem stúdent í gær, aðeins 17 ára gömul.
GLÆSILEGT!
Kv. Hidda.

laugardagur, júní 23, 2007



Þessar tvær áttu að fylgja líka,
Kv,
Gunnar og Stína

Kveðja Frá Vopnaf.


Komið öll sæl og blessuð!

Langt síðan síðast og örugglega margt skeð bæði hjá ykkur og að sjálfsögðu okkur líka.
Eins og ykkur rekur eflaust minni til þá fórum við hjónin til útlanda, að vísu sitt í hvoru lagi, ég til Danmerkur og Svíþjóðar og Stína til Frakklands. Í stuttu máli þá var þetta alveg æðislegt. Við vorum mjög heppin með ferðafélaga, Stína með vinkonu sinni og mágkonu, og ég með Gunnari Smára. Burt séð frá því þá erum við ákveðin í því að þetta gerum við ekki ótilneydd aftur, það er að segja svona sitt í hvoru lagi.
Nóg um það, Flosi og Rannsí voru hérna hjá okkur núna í síðustu viku, það var að sjálsfsögðu afskaplega gaman að fá þau í heimsókn og mín tillaga er að næsti systkinabarnapúkahittingur verði hér á Vopnafirði. Það er aldrei að vita nema eitthvað verði til á grillið og jafnvel gæti hugsast að örlítið bakkelsi leynist á góðum stað í kotinu. Svo get ég líka boðið upp á fría líkamsrækt hérna heima fyrir, þið getið séð líkamsræktaraðstöðuna á einni myndinni sem fylgir pistlinum. Við erum semsagt að gera smá í bakgarðinum hjá okkur og að sjálfsögðu þá er ykkur velkomið að taka þátt í því (samt ekki skilyrði).
Sumarfrí tökum við okkur væntanlega í ágúst og hyggjumst þá leggja land undir dekk og fara með okkar fellihýsi suður norður og vestur. Ætli við endum svo ekki á því að bruna austur aftur í endaðan ágúst. Annars er þetta ekkert niðurnjörvað og verður frjálslega farið með ferðaáætlun, stefnum reyndar mjög ákveðið á “Fiskidaginn mikla” á Dalvík. Við fórum í fyrra og húkkuðumst algjörlega á þetta. Hittum hana Jónu dóttur Stellu og Adda þar mjög óvænt, erum reyndar alltaf að hitta hana óvænt hér og þar um landið.
Magga og Jóna Guðný eru úti í Danmörk akkúrat núna og koma heim þann 27. Alveg æðislegt heyrist okkur á þeim. Þær koma síðan af og til til okkar í sumar, gaman, gaman. Magga er búin að fá kennarastöðu við Oddeyrarskóla á Akureyri þannig að þar virðist ætla að verða hennar samastaður alla vega fyrst um sinn. Jóna og fjölskylda eru í Hveró og blómstra þar að sjálfsögðu, við eigum von á þeim í júlí einhverntíman, gaman, gaman.
Ég setti myndir af húsinu okkar ykkur til glöggvunar þegar þið komið í heimsókn. Munið bara að láta vita þannig að einhver sé nú heima.
Sem sagt, allt gott hjá okkur og vonandi ykkur líka,

Gunnar Smári og Stína.

miðvikudagur, júní 06, 2007

Hittingur hjá Hiddu


Það var fámennt en góðmennt í boðinu en svaka gaman.
Að sjálfsögðu var tekin mynd af þeim sem mættu í partýið.
Set hana hér með með smá útskýringum hver er hvað.
Byrjum efst:
Hidda hin eldri hangir utan á stiganum ásamt Guðrúnu Elsudóttur.
Sitjandi efst í stiganum er ég (Þórdís Ellu) með Benedikt minn, þar við hlið kemur Hidda hin yngri (Steinunn Hildur Elsudóttir) í fangi Elsu hennar Hiddu.
Næst fyrir neðan Elsu er Sóley Eddadóttir með Jóhönnu Margréti dóttur sína í fanginu, Alla litla hans Hödda hennar Öllu við hliðina á Sóley og neðst í stiganum situr eldri dóttir Sóleyjar, Karen Rut.
Nú og fyrir utan stigann standa svo Eddi Öllu og Höddi hálf sjö.
Og svo vantar náttúrulega ljósmyndarann á myndina en það var Herjolf hennar Hiddu sem smellti af.
Annars voru vöfflurnar snilld og þarna kom æðislega góð hjónabandssæla (þó ég segi sjálf frá) og ýmislegt fleira svona ef þið viljið vita af hverju þið misstuð.
Reynum bara aftur síðar.
Kveðja
Þórdís

þriðjudagur, júní 05, 2007

Óformlegur systkinabarnapúkahittingur

Í dag uppúr kl hálf fimm ætla einhverjir systkinabarnapúkar að hittast hjá mér í Melgerði 10. Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem vera vilja mér og mínum að meinalausu. Hinir fá engar vöfflur þó þeir grenji í allan dag! Nú og þeir sem heldur vilja sitja heima grenjandi, þeir mega bara grenja sig gula og græna og fá enga samúð hjá mér!

sunnudagur, maí 20, 2007

Afmælisdagatal

Ég hef verið að föndra við að búa til afmælisdagatal fyrir Hlíðarvegspúka og þeirra maka, í dag 20. maí eiga til dæmis Herjolf hennar Hiddu og Ríkharður hennar Birnu Láru afmæli samkvæmt mínum bókunum. Til hamingju báðir tveir.
Þar sem þetta eru svolítið margir afmælisdagar þá var ég að reyna að létta skriftuna aðeins og þá fór allt fjandans til og síðan neitaði að birta þá afmælisdaga sem hún átti að birta. Er enn að vinna í kerfinu þannig að ekki láta ykkur bregða þó það komi eitthvað skrítið í hausinn fyrir neðan fyrirsögnina. :)
Einnig ef það koma afmæliskveðjur til einhverra sem eiga alls ekki afmæli, eða þá öfugt að ef einhver fær ekki afmæliskveðju þá má gjarnan láta vita, ég verð þá bara að skammast mín ægilega og laga málið.
Svo kemur ættartréð vonandi fljótlega inn fyrir þá sem eru orðnir óþolinmóðir.
Kveðja
Þórdís Hlíðarvegspúkasíðuráðherra.

Sigga Þrastar komin inn!!!

Hæ allar frænkur og allir frændur nær og fjær.



Þá er loksins búið að hleypa manni inn. Eftir töluvert japl og jaml við þórdísi féllst hún loksins á að hleypa mér inn. Ég hef fylgst með póstunum frá þeim sem hafa tjáð sig og haft gaman af.

Næst þegar ég hef tíma ætla ég að segja ykkur frá mér og mínum.

Til hamingu til Eydísar og okkar allra með nýasta Hlíðarvegspúkann hún sver sig svo sannarlega í ættina.

Ok bless í bili, meira seinna.

Ég ætla að reyna að fá myndir hjá Einari frá afmælinu og setja þær inn fyrir ykkur. Kannski gæti hann meira að segja gert það sjálfur!!!

Allavega bless.

föstudagur, maí 18, 2007

jæja...

Nú fer ég að búa til krassandi kjaftasögur um þetta leyndardómsfulla partý sem enginn vill tjá sig um.
Aðrir sem finnast þeir vera útundan, endilega takið þátt.

Fríða dansaði tpplaus uppi á borði.
Einar sofnaði undir borðinu klukkan 9:30.
Halldór Antons stal nýju gröfunni hans Einars og fór á rúntinn.
Anna sást yfirgefa partýið með hávöxnum gráhærðum manni.

Ég get ekki búið til meira því ég veit ekki einu sinni hverjir voru í partýinu.

Kata
-útundan

Höddi fer á flakk...



Jæja gott fólk, þá er komið sumar og skólinn að klárast. Af því tilefni ætlum við Álfheiður Kristín að fara suður til Reykjavíkur þann 30./05. og dvelja í viku tíma. Þar sem að um er að ræða heila viku, þá finnst mér líklegt að við reynum að hitta ættingja á þessu svæði, og kannski með einhverju skipulagi (sem væri alveg nýtt hjá mér :D ) Ég veit hvar bræður mínir búa, og Hidda, en þar með er það upptalið :(. Myndirnar: Þessi mynd af Álfheiði er tekin fyrir nokkrum dögum, þegar hún var fengin í módelstörf fyrir Dyngjuna handverkshús.. Myndin af kallinum er tekin við Illugastaði í Fnjóskárdal síðasta sumar (P.s.Ég er búinn að raka mig)

miðvikudagur, maí 09, 2007

Til hamingju Eydís og Tóti með litlu dömuna!

Frétti af fæðingunni, innilega til hamingju Eydís! Nú er bara að bíða eftir myndum af frumburðinum. Kveðjur héðan frá Svíþjóð. Hulda og Elín Snæfríður (organdi á gólfinu).

þriðjudagur, maí 08, 2007

Er hægt að fa frettir af partyinu?

Fyrir okkur sem komust ekki.

föstudagur, maí 04, 2007

Til hamingju Einar Halldórsson!

Hlíðarvegspúkinn Einar Halldórsson verður fimmtugur þann 7. mai og ætlar að gleðjast með vinum sínum og ættingjum á morgun laugardag. Í því tilefni langar mig til að senda honum smá afmæliskveðju í bundnu máli. Ég vona að sem flestir geti tekið undir fjöldasöng það kvöld við lagið "Hann var sjómaður dáðadrengur"

Hann Einar er ofursætur
ég hef á honum miklar mætur
hann er fimmtugur nú,
hann er flottari en þú
hann er frjáls hvar hann sefur um nætur.

hann er dáðadrengurinn góði
hann er dáður í kvennastóði
og á lausu hann er, oft í laumi hann fer
inní landhelgi þeirra í hljóði.

Á gröfunni er gríðarsnarpur
já hann getur það þessi garpur
þegar drynur um jörð er hann dregur til svörð
þar fer drengurinn knár og skarpur.

Ó svo sterkur og stæðilegur
hann að standast er enginn vegur
"elsku Einar minn kær" kvakar örvingluð mær
hún er ástsjúk og rómurinn tregur.

En hann Einar það allt af sér stendur
það er alls ekki furð´ann sé kenndur
við styrkleika og þor, það er staðhæfing vor,
hann á staðfasta a-aðdáendur.

Við Hlíðarvegspúkar fljótt sjáum
hvern við sérlega virðum og dáum
hvert um foldir hann fer, okkar fyrirmynd er
hann er öðlingur, einn af fáum.

Nú afmælissönginn við syngjum
og sérstökum glösum klingjum
hann er fimmtugur nú, hann er flottari en þú
hann er fremstur af sínum jafningjum.
(Hidda frænka)
(Hidda frænka)

Reykjavikurbuar og nagrennislið


Hæ allir
Bara að láta vita að sonur minn og eiginmaður eru á leiðinni til Íslands í stutta heimsókn. Þeir lenda í fyrramálið og munu líklega sjást við hina ýmsu sundstaði og útsölustaði SS-pylsna um Reykjavík og nágrenni fram á miðvikudag. Tjörvi hefur ekki náðst ógrettur á mynd í áraraðir en hér til hægri er Kári Karl, fylgdarmaður hans.
Við mæðgurnar (2 og 1/2) ætlum að hafa það náðugt heima á meðan við erum lausar við þessa morgunhana. Hér verður sofið út, vakað frameftir og ekki leikið í sandkassanum í 5 heila daga ! Ætli þurfi nokkuð að sópa eða þvo þvott allan þann tíma.
Þið kastið á þá kveðju frá mér er þið rekist á þá.
Kata.

sunnudagur, apríl 29, 2007

UGLASATAUGLASATAÆOGÓ!

Sæl verið þið og takk fyrir síðast! Loksins komst ég inná síðuna okkar eftir mikið basl á minni tölvu. Núna er ég að passa hjá Elsu og laumaðist í tölvuna hennar og pling, ekkert mál að komast inn þar. Skrýtið! Þarf að fara að bjóða Þórdísi í kaffi og vöfflur til að sjá hvort það virkar!Það sem helst er í familíufréttum er annars það að Ólafur tengdasonur er að spila í kvöld á Kjarvalsstöðum og þessvegna vantaði barnapíu. Elsa í miðasölunni eins og góðri eiginkonu sæmir og Hidda litla ein heima í Grundarlandskoti. Nú er hún loksins sofnuð svo það er hægt að Hlíðarvegspúkast aðeins.
Af Huldu er það að segja að hún og Max eru núna í Þýskalandi og verða líklega á faraldsfæti næstu vikuna eða tvær í Brussel og víðar, annars veit ég ekki alveg hvernig ferðaplanið er hjá þeim. Aftur á móti er Árni væntanlegur heim frá Arkansas um næstu helgi en fer sennilega samdægurs upp að Bifröst til að ljúka síðustu önninni. Það versta er að það ber uppá sömu helgi og einn góður Hlíðarvegspúki fyrir Westan ætlar að halda uppá merkisdag í lífi sínu.
Ugla sat á kvisti.....átti börn og missti.......Æ hversvegna þarf lífið að vera svona flókið!!!

föstudagur, apríl 27, 2007

Blessuð blíðan

Loksins tókst þetta, með Þórdísi tölvunörd í símanum þorði tölvuskrípið ekki annað en gegna
öllu því sem við sögðum henni. Ég veit ekki enn hvert síðasta bloggið mitt (verulega umfangsmikið og vandað)lenti en svo mikið er víst að ég hef ekki séð tangur né tetur af því.
Hvað um það, takk fyrir alla pistlana ,Höddi hálfsjö, Þórarinn Flosi , Gunnar Smári ,Kata og hin öll. Verulega gott að heyra frá ykkur og vita hvað er á döfinni . Ég er enn að vona að mínur afkomendur, aðrir en Þórdís, fari að láta til sín heyra.en þeim er greinilega ekki mikið niðri fyrir,enn sem komið er. Hér er mikil blessuð blíðan, 14 stiga hiti og sól og hefur verið undanfarna daga, svo prófaundirbúningur og æfingar er ekki endilega það sem mann langar mest til að gera
En sem betur fer hefur gestagangur verið talsverður síðastliðinn mánuð og því nóg annað að hugsa um. Höddi hálfsex og Magnea komu á páskunum með fjölskylduna, Einar Gylfa( sem hélt upp á tíu ára afmælið sitt heima hjá afa og ömmu á föstudaginn langa) og Mörtu Maríu sem er fimm ára. Þórdís og Björgvin komu líka með prins Benedikt, eins árs sjarmör, sem er frátekinn fyrir prinsessuna sem fæddist í Danaveldi fyrir skömmu. Það var því líf og fjör í kotinu Þá helgina. Á sumardaginn fyrsta komu svo Palli og Berglind með sín tvö börn Hálfdán Hörð og Matthildi Maríu og voru til sunnudags. Látum gott heita í bili , hver veit nema meira komi seinna, Ennþá sakna ég margra sem ég er viss um að eiga tölvur og netföng og mættu láta til sín heyra Kveðjur úr blessaðri blíðunni fyrir Westan. Ella

laugardagur, apríl 21, 2007

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar frændur og frænkur nær og fjær

Þá er að reyna að koma með einhverjar fréttir af familíunni
Eins og pabbi og mamma skrifuðu um daginn þá er ég gift og á litla dúllu sem heitir Guðný Magnea ( alltaf kölluð Magga ) og er að verða tveggja ára í haust og maðurinn minn heitir Pétur. Við gifturm okkur í júní 2005. Við búum eins og er heima hjá mömmu og pabba á Háaleitisbrautinni í góðu yfirlæt þeirra og Magga litla nýtur þess í botn að hafa ömmu og afa til að gera óþekk ( sérstaklega afa ). Við erum búin að vera hjá þeim síðustu fjögur ár á meðan að ég var í skólanum en nú stefnum við á að fara að í okkar eigið húsnæði jarfnvel í haust eða eftir áramót.
Magga er í pössun hjá konunni sem að býr á fyrstu hæðinni hjá okkur ásamt tveimur öðrum börnum. En svo núna í ágúst þá mun hún byrja á leikskóla sem að er bara hérna við hliðana á okkur.

Ég útskrifaðist frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti síðast liðið vor sem sjúkaraliði og starfa sem slík í dag á Hrafnistu en ég hef reyndar verið að vinna þar síðasta 6 ½ ár. Pétur er að keyra hjá strætó með pabba gamla. Pétur á einn strák sem að heitir Bjarni og er að verða 13 ára og býr hjá mömmu sinni í Grafarvoginum.

Inga Stína og familí

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt sumar!


Gleðilegt sumar allir Hlíðarvegspúkar.
Set hérna eina sparimynd af yngsta meðlimi Fagraholts 14 slektsins, hann var að hoppa í sófanum en tók sér smá pásu til að leyfa mömmu að taka mynd fyrir Hlíðarvegsbloggið.
Kveðjur úr Kórnum.
Þórdís

þriðjudagur, apríl 17, 2007

Kveðja frá Háaleitisbraut 45

Heil og sæl öll
Hér á Háaleitisbrautinni er gott að vera. Við höfum búið hér í rúm 2 ár og þessi tvö ár eru búin að vera frábær.

Í fjölskyldu okkar eru þrjú börn elst er Birna Lára, hún er snyrtifræðingur, og hún á tvo púka, Kjartan Inga fæddan á Ísafirði 1996 og Guðmund Flosa fæddan í Reykjavík 1997. Hún býr með Ríkarði Utley, strætisvagnabílstjóra. Ingibjörg Kristín, sjúkraliði, gift Pétri Gunnari Þór Árnasyni strætisvagnabílstjóri, þau eiga Guðnýju Magneu fædda í Reykjavík 2005. Valdimar Guðmundur er yngstur okkar barna, hann er með ólæknandi bíladellu svo það kom ekki á óvart þegar hann tók meiraprófið og starfar nú sem bílstjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Einnig er hann í Leikfélagi Kópavogs og situr hann það í stjórn. Einnig sér hann um ljósahönnun hjá fleirum leikfélögum, nú síðast hjá Stúdentaleikhúsinu og er þar sýningarstjóri.

Flosi er enn að keyra strætó og Rannsý vinnur hjá Landsbankanum og við erum sjálfstæðir dreifingaraðilar Herbalife og erum að fara í boði þeirra til Danmerkur fyrstu helgina í maí. Ef þið viljið vera með okkur í þeim félagskap þá er pláss fyrir ykkur öll og fleiri til.

Kveðja
Flosi og Rannsý

þriðjudagur, apríl 10, 2007

Kveðja fra Vopnafirði

Komiði öll blessuð og sæl og gleðilega eftirpáska.

Gaman að sjá að líf er farið að færast í bloggmenningu ættarinnar, Höddi kominn inn og þau “gömlu” í Fagraholtinu. Ég vissi það að með þrjóskunni hefðist þetta allt, það er að segja ef þrjóskunni er beint í rétta átt. Þá er bara að reyna að virkja þá Edda, Flosa og Stebba inn í menninguna og að sjálfsögðu alla niðjana.

Af okkur er allt gott að frétta, að sjálfsögðu nýliðnir páskar með tilheyrandi áti og afslöppun. Eitt skyggði þó á páskaánægjuna, við vorum ein (snökt), engin börn eða barnabörn eða tengdabörn. Reyndum samt að gera gott úr öllu saman og vorum í daglegu og stundum oft á dag sambandi við þau öll. Reyndar þegar betur er að gáð þá vorum við ekki alveg ein því að Hreiðar og Anna (kærastan hans) komu í mat til okkar á annan í páskaeggi. Þau eru reyndar að fara til Benidorm 22. eða 23. þessa mánaðar, ætla sko að vera í heilar 4 vikur takk fyrir. Geri aðrir betur 79 ára og alveg að verða 80 ára gömul bæði tvö. Þetta kallar maður að njóta lífsins í botn. Verst að mér hefur ekki tekist ennþá að koma víndropa ofan í kallinn, hann hefur reyndar lofað mér því að á níræðisafmælinu sínu þá ætli hann að fá sér ærlega neðaníðí með mér.
Ég er reyndar líka að fara á erlenda grund, ætla að skreppa tíl Svíþjóðar og Danmerkur í vikutíma. Ætla að heimsækja æskuvin minn sem býr í Svíþjóð, verð þar í tvo daga, restina af ferðinni verð ég hins vegar hjá hálfbróður mínum honum Kára, strákurinn verður fimmtugur og þarf á handleiðslu sér eldri og reyndari bróður að halda. Þetta verður svona stráka ferð hjá mér, ég skil Stínu eftir í barnabarnaleik í Hveragerði á meðan. Hún er reyndar sjálf að fara 3. maí til Frakklands í tólf daga ferð með vinkonu sinni og mágkonu, það er svona kvennaferð á Bretagne skagann. Æðislega spennandi finnst þeim að sjáfsögðu. Þær koma til með að gista hjá ættingjum og vinum vinkonu hennar Stínu sem er frönsk og verður það sjálfsagt mikil upplifun.
Sem sagt, gleði gleði gleði......
Bestu kveðjur til ykkar allra., og verið nú dugleg að blogga og senda inn myndir.
Gunnar Smári og Stína á Vopnafirði,
sem er nú ekkert voðalega langt í burtu frá ykkur hvarsvosemþiðeruðniðurkomin.

miðvikudagur, apríl 04, 2007

Paskakveðjur

Hæ allir nær og fjær.

Ég vildi bara senda ykkur öllum Gleðilegar Páskakveðjur.
Hérna í Ameríkunni er ósköp lítið um páskafrí um hátíðarnar. Það er að vísu frí í skólanum Föstudaginn langa (sem er kallaður Good Friday hérna) en svo er það bara búið. Ég held að þetta "annar í páskum/jólum/hvítasunnu" sé mjög Íslenskt fyrirbæri. Allar búðir eru opnar alla dagana svo maður getur skellt sér í bíó eða í Mall-ið í miðjum páskamatnum.

Við erum svo heppin að vinkona mín frá íslandi er hjá okkur um páskana og ferjaði með sér ekta Íslensk súkkulaði páskaegg. Amerískir siðir eru dálítið skrýtnir í okkar augum. Við þurfum til dæmis að ákveða hvort við ætlum að reyna að ljúga því að börnunum að páskakanínan komi nóttina fyrir páska og feli plastegg full af nammi á víð og dreyf um garðinn.
Hinn möguleikinn er að allir hinir krakkarnir í götunni fái heimsókn frá þessari úrkynjuðu risavöxnu kanínu (sem verpir eggjum) en ekki Íslensku börnin.

Bestu kveðjur frá okkur í Dauðskinkubæ.
Kata

fimmtudagur, mars 29, 2007

Taka tvöö...


Jæja, ég er búinn að grandskoða allar myndir, og við eigum bara ekki fjölskyldumynd !!

Bætum bara úr því seinna :) . En hérna er prufa..


Kær kveðja til allra.... Höddi hálfsjö :)
Myndin er tekin á jóladag 2004

sunnudagur, mars 25, 2007

Kveðja frá Hödda

Komið þið sæl og blessuð öll fjölskyldan. Það er eins og með margt annað, að það er búið að taka sinn tíma að koma sér að verki og fara að gera eitthvað af viti hérna á síðunni. Það er orðið ansi langt síðan ég hef hitt flest ykkar, og þau ykkar sem ég hef þó hitt, þá hefur það verið fyrir algera slysni, en svona er þetta bara.
Eins og sum ykkar vita, þá er ég búsettur í Mývatnssveit, og hef búið undanfarin ár. Ég er að vinna fyrir verktakafyritæki hérna á svæðinu, (ennþá í sandkassanum :) ) og kann bara vel við mig hérna.
Við erum fjögur í heimili, sambýliskonan mín heitir Jónína Baldursdóttir (40), yngsta dóttir hennar, Steinunn Ósk (10), og svo perlan mín hún Álfheiður Kristín (11), sem hefur búið með okkur í vetur,
Og svo ég (39) svo að glöggir lesendur sjá að meðalaldur fjölskyldunar er rétt tuttugu og fimm ár :)
Ég er mikið búinn að leita að heimildarmynd af okkur, en ekki fundið neina (alltaf einhver á bak við myndavélina) En ég finn eitthvað………

Kær kveðja í bili……
Hörður Sigurjón Karlsson
Birkihrauni 7
660
Reykjahlíð
Mývatn
Vision@mi.is S 4642201-8454960

Nei engin mynd núna...

laugardagur, mars 24, 2007

Kveðjur frá Huldu og Elínu Snæfríði

Hæ og hó fjölskylda
Bara stutt í dag því ég er að prufa hvort ég fatti forritið, ef það virkar allt hjá mér þá skal ég skrifa betur við allra næsta tækifæri.

En fyrst þetta :
Ég og litla 6 mánaða hosan mín hún Elín Snæfríður erum í örstuttri heimsókn hjá Hiddu ömmu og Herjolfi afa, venjulega búum við í Lundi í Svíþjóð og í Osló. Í dag kom Þórdís í heimsókn og var að sjálfsögðu með Benedikt litla með sér. Myndin var tekin við það tækifæri.
Meira seinna, bestu kveðjur, Hulda

þriðjudagur, mars 20, 2007

Smá tilkynning!

Hæ og hó, Hulda kemur á morgun frá Lundi með litla stelpustýrið sitt hana Elínu litlu Snæfríði og þær ætla að stoppa í viku og vilja hitta sem flesta. Er kannske einhver sem getur lánað hoppirólu?

mánudagur, mars 19, 2007

Áskorun !

Ég tek undir þetta hjá Hiddu og fleirum. Við þurfum að fá fleiri að deila með okkur hvað þeir eru að gera þessa dagana.
Hvernig væri að Flosi og Gunnar Smári myndu til dæmis ota því að sínum börnum að skrifa nokkrar línur hingað inn ?
Hver veit nema Gunnar Smári gæti haft áhrif aðeins lengra og náð til bræðrabarna sinna. Ég skal reyna að hafa áhrif á systkini mín sem hafa ekki látið heyra í sér hérna.
Ég sjálf er orðin hálf feimin við að vera alltaf að rífa mig hérna inni. Það bæri ekki eins mikið á því ef fleiri myndu taka þátt ;o)

Þetta smá mjakast hjá okkur!

Sæl aftur og takk fyrir síðast! Já og velkomin á bloggið okkar Ella og Flosi! Það var orðið hálf fúlt að vera sú eina af "eldri kynslóðinni" sem reyndi að vera með í þessu, en nú virðist vera kominn skriður á hlutina fyrst fleiri eru að bætast við. Samt er ég nú að vona að þið sem yngri eruð, semsagt börn og barnabörn okkar upphaflegu Hlíðarvegspúkanna, farið að láta oftar í ykkur heyra. Tilgangurinn með síðunni var jú einmitt sá að stuðla að sambandi ykkar á milli, svo ættartengslin gliðni ekki svona fljótt. Sjálfri finnst mér alveg drullufúlt að börnin mín þekki ekki öll börnin hinna systkina minna og þá ekki heldur þeirra börn. En tíminn líður svo fljótt og þau ykkar sem voru með horinn niður á maga fyrir nokkrum andartökum síðan eins og Gunnar Smári orðaði það svo undurfallega í gær, eruð dreifð um víðan völl og hittist varla nema við jarðarfarir eða eitthvað enn minna skemmtilegt. Og þá er jafnvel spurt: "Mamma hverjum varstu að heilsa?" ´"Nú þetta var hún Halldóra Víðisdóttir hennar Jónu hans Adda, .....eða.... hann Kalli Stebbason hennar Öllu,......... eða.... Hva!.. mannstu virkilega ekki eftir henni Ingu Stínu hans Flosa hennar Öllu?"
Svona nú, látið í ykkur heyra! Hver veit nema ykkur verði þá smalað saman á ættartreff í sumar. Þá væri nú gott að vera búin að fá að vita smávegis um hvað þið eruð að gera, að hugsa, eða að hugsa um að gera.
Kveðja til allra, Hidda.

sunnudagur, mars 18, 2007

Það er erfitt lífið innst í Fagraholtinu, nánar tiltekið í nr.13 og 14 Flosi og Ella sitja sveitt við að fá eitthverjar skýringar á því undarlega fyrir bæri sem heitir Hlíðarvegspúka blogg. Flosi fær ekki sína tölvu til að makka rétt. þ.e.hann kemst alls ekki inn með millinafni okkar ástkæru móður. Hver skýringin er fæst ekki botn í , svo að við sitjum hér systkynin Ella og Flosi og klórum okkur í lubba og skalla. Héðan er annars allt sæmilegt að frétta snjóflóð og yndislegheit, ekki hundum út sigandi svo við settumst við niður og ákváðum að reyna. Annars er þessi bloggsíða nú sennilega skemmtilegri og fróðlegri fyrir yngri kynslóðina heldur en okkur " Gömlu" stykkin en samt er nú svo að við skoðum hvert orð sem út á pistlinum kemur og gleðjumst yfir öllum þeim sem láta til sín heyra. Það að setja inn myndir er eitthvað sem verður að bíða betri tíma, því að kunnáttan er ekki enn upp á marga fiska. en okkur fer fram með hverjum degi sem líður svo ekkert er ómögulegt. Flosi biður sérstaklega að heisla Gunnari Smára og Stínu einhversstaðar í Langbortistan og svo nátturlega sendum við hveðjur til allra sem hafa bloggað til þessa, og líka þeirra sem ekki hafa enn lagt í tækniundrið. Höfuð og herðar ættarinnar á Vesturhorninu

fimmtudagur, mars 15, 2007

Jón Valdemarsson og Sigríður Ásgeirsdóttir


Sæl verið þið, til hamingju með daginn um daginn Þórdís. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, krakkaormarnir sem maður man eftir með hor niður á maga bara orðin fullorðin, farin að búa og allt.
Hvernig er það, er ekki hægt að láta myndina af afa og ömmu byrtast við hliðina á "Hlíðarvegs 25 púkonum" þarna efst uppi, þannig að þau vaki yfir síðunni. Gæti verið gaman ef hægt væri að koma því við.

laugardagur, mars 10, 2007

Til hamingju með afmælið Þórdís!

Laugardagur 10. mars, bjartur og fagur! Vonandi tekst ykkur að flytja inn í nýja húsið í dag elsku Þórdís mín. Til hamingju með það líka!
KV. Hidda.

föstudagur, mars 09, 2007

Heimasíður fjölskyldumeðlima

Halló allir
Vil bara minna á listann yfir þau sem eru með heimasíður hérna til vinstri. Ef þið vitið um fleiri endilega látið vita svo ég geti bætt þeim þarna inn.
Annað vil ég líka benda á, neðst á síðunni er teljari og hann er kominn yfir 500 þegar þetta er skrifað. Það þýða rúmlega 500 heimsóknir síðan ég setti hann upp. Þykir það meget gott!
Svo er líka gestabók, yrði fínt að þeir sem skoða bara (eru ekki komnir inn ennþá) merki við í gestabókina svo ég sjái hversu dreift þetta er. Það á ekki að vera erfitt að kvitta þar. Annars er líka hægt að kvitta í athugasemdum undir hverri grein, bara að smella á "að rífa sig" og skrifa smá skilaboð. Ef þið eru ekki með login þá er auðveldast að merkja við "anonymous" og vola!
Bestu kveðjur
Þórdís

sæl öll frændsystkin nær og fjær

verð bara að byrja á að pústa....úff úff úff.... held þetta hafi nú tekist í þetta sinn.....búin að sitja sveitt og ekki bara einbeitt heldur mjög, mjög einbeitt við tölvuna og fara samviskusamlega eftir fyrirmælum Þórdísar til að komast hér inn! Þið sjáið þetta þá ef það hefur tekist.

Takk Þórdís mín fyrir aðstoðina. ....Annars hitti ég Dagnýju frænku og Dóra í dag, eða öllu heldur rakst ég á þau á hlaupum inn í Húsgagnahöllina í dag og þar komumst við að því að við vorum sammála um hvað tæknin væri nú mikil í dag (hljómar eins og tvær gamlar konur hafi verið að ræða saman)..... og einnig því að Þórdís frænka hlyti að vera kynslóð yngri en við...ef ekki tveimur... þetta segir nú ýmislegt um okkur.

Gaman að heyra frá ykkur hér og endilega látið þetta berast svo fleiri líti inn á síðuna okkar og spjalli. Frábær vettvangur.
Hef þetta ekki lengra í bili....ætlaði að sofna snemma í kvöld en er enn alveg að fara að sofa
b.kv.til ykkar allra
Fríða Halldórs

laugardagur, mars 03, 2007

Takk fyrir myndirnar Gunnar

Ég þakka Gunnari fyrir myndirnar og finnst hugmyndin frábær. Þarf bara að sortera þær eftir "genum og gunnum". (stofnfumurannsóknir eru ekki heimilaðar ennþá því miður) En þá er líka mikilvægt að þær séu rétt merktar þannig að enginn ruglingur verði. Þess vegna ætla ég að koma með smá leiðréttingu á fjölskyldumyndinni af Halldóru ömmu því það voru nokkur atriði sem ekki voru rétt:
Á myndinni fyrir miðju er Halldóra Pétursdóttir Zar, mamma hennar Sigríðar ömmu ykkar (mömmu) á Ísafirði. Bönin hennar frá vinstri á myndinni eru:
Sigríður Ásgeirsdóttir fædd 7. september 1903, dáin 1981, gift honum Jóni sínum og ættmóðir okkar allra.
Þórunn Ásgeirsdóttir fædd 17. apríl 1898 dáin 1996, ógift og barnlaus.
Í fangi ömmu Halldóru situr "Diddi frændi" Ásgeir Einar Jóhannesson, yngsta barnið og hálfbróðir hinna. Hann er fæddur 1913, dáinn 1990.(Kvæntur "Billy" Þuríði Edvald og þau áttu Gunnar, Samúel og Jóhönnu Halldóru (Hönnu Dóru).
Kristín Álfheiður Ásgeirsdóttir fædd 1897, dáin 1918 í spönskuveikinni sem þá geisaði. Ógift og barnlaus.
Gunnhildur Ásgeirsdóttir fædd 1902, dáin 1975, ógift og barnlaus.
Á myndina vantar Kristján Ásgeirsson sem fæddur var 1899, dáinn 1992. Hann varð snemma ekkjumaður og einstæður faðir með 1 barn, hana Eddu frænku okkar sem er kennari í MH
og býr í Reykjavík.
Vona að fleiri eigi eftir að senda myndir og að einhver tölvuklárinn (þorði ekki að segja nördinn) finni þörf hjá sér til að skipuleggja albúmið.
Bestu kveðjur til allra, Hidda.

Halló, halló

Sæl verið þið aftur,
þarf ekki að stofna myndaalbúm inni á síðunni? Gæti verið gaman að safna myndum þar inn og flokka eftir stofnfrumum þannig að ljóst sé hver er út af hverjum.


Sennilega mynd af starfsfólki Klæðskerastofu Einars og Kristjáns. Sigríður Ásgeirsdóttir og Gunnhildur Ásgeirsdóttir fyrir miðju í aftari röð. Svolítið bil á milli þeirra.


Valdemar og Elín með Jón og Gunnu.


Valdemar Jónsson pabbi Jóns Valdemars Guðmundar Valdemarssonar.

Halldóra Pétursdóttir Zar með Ásgeir Einar Jóhannesson í fanginu, Sigríður Ásgeirsdóttir (mamma, amma, langamma o.s.frv.) lengst til vinstri, þá koma systur hennar, Þórunn (Tóta frænka) Kristín Álfheiður og Gunnhildur lengst til hægri

föstudagur, mars 02, 2007



Svona leit settið út árið 2005, höfum lítið breyst síðan þannig að ef þið sjáið þetta fólk á ferli einhversstaðar, endilega heilsið þeim.

Loksins, loksins, loksins...........

Komiði sæl og blessuð, eins og maðurinn sagði.
Þar kom að því að við getum farið að hafa samband hvert við annað án þess að sjást eða heyrast. Gargandi snilld þessi hugmynd að síðunni. Endilega notið möguleikann á því að senda myndir, ekki bara af börnunum heldur líka af ykkur sjálfum. Það er örugglega mjög pínlegt ef að við hittumst einhverstaðar á förnum vegi og könnumst svona við svipinn en komum honum ekki alveg fyrir okkur, brosum vandræðalega og kinkum kolli án þess að vita hverjum maður er að heilsa. Svo þegar heim er komið, þá rennur upp fyrir manni, “já kannski var þetta hann Höddi hennar Ellu, eða Flosi hennar Öllu”. Þá kemur myndahornið á síðunni sér vel, bara fletta í gegnum það, og sjá. Þetta var þá eftir allt hann Gunnar Halldórs.
Nóg um það. Til hamingju með framtakið.
Ég var bara rétt í fyrradag að fá upplýsingar um að þessi síða væri komin í gang og að sjálfsögðu fór ég að leita mér upplýsinga um hvernig ég ætti að nota apparatið. Fyrst varð mér fyrir að leita upplýsinga hjá Hiddu, kom ekki aldeilis að tómum kofanum þar. “Gerðu bara svona og svona,!!!??? nei kannski ekki svona heldur hinsegin. Æ þetta virkar ekki þetta helv. Drasl. Hringdu í hana Þórdísi”. Ég hringdi í Þórdísi og hún leiddi mig í gegn um ferlið af þeirri ljúfmennsku sem ég hélt nú í einfeldni minni að væri ekki til staðar í fjölskyldunni. Hún varaði mig sérstaklega við því að skrifa beint inn á síðuna, nota frekar ritvinnsluforritið til þess að skrifa það sem ég ætlaði að birta og copera það síðan inn á síðuna til þess að glata því nú ekki ef síðan tæki ekki við fagnaðarerindinu. Þessu játti ég að sjálfsögðu, en þar sem ég var nú kominn inn í kerfið og var uppfullur af allskonar hugmyndum, mis gáfulegum að sjálfsögðu, þá lét ég vaða og skrifaði og skrifaði. Það var svo fyndið að þið hefðuð velst um í marga daga af hlátri. Nú nú, nema hvað, ég ýtti á send eða hvaðsemhannnúheitirtakkinnsemáaðnota, og upp kom melding um að síðan væri ekki lengur virk.
Ég grét mig í svefn og var með ekkasogum í morgun. Þetta kennir manni það að EKKI bara hlusta á það sem þér fróðari menn reyna að kenna þér, FARÐU EFTIR ÞVÍ.

Í fréttum er þetta helst.
Við höfum það bara býsna gott þessa stundina, Stína nýkomin af Kristnesi, var þar í endurhæfingu og búin að vera á sjöttu viku. Skildi mig aleinan og yfirgefinn heima. Til þess að kallinn horfélli nú ekki á þessum tíma þá var hún búin að útbúa í frystikistuna matarskammta langt fram á árið og merkt þá skilvíslega, mánudagur..... þriðjudagur.... osfrv. Þetta gekk allt vel til að byrja með, vandamálin hófust þegar nágrannarnir fóru að bjóða mér í mat, þá hætti dagtalið að ganga upp og meltingartruflanir fóru að gera vart við sig. Þið sjáið það sjálf að það er ekki hægt að borða mat sem merktur er “fimmtudagur” á sunnudegi.
En sem sagt, Stína er komin heim og nú færist lífið í eðlilegt horf aftur sem betur fer. Við áttum mjög gleðileg jól, fengum alla hersinguna til okkar, þ.e. börn barnabörn og fylgifiska. Verst hvað þessi tími líður allt of fljótt. Með myndir af barnabörnum þá farið þið inn á vefinn barnaland.is og finnið Margréti Ólafíu fimleikadrottningu og Jónu Guðnýu Pálsdóttur. Til þess að sjá myndirnar hjá Jónu Guðnýu þá þarf lykilorð. Ef þið munið seinna nafnið hennar Möggu þá getið þið notað það sem lykilorð.
Jæja,
Nú er mál að linni. Ég hvet alla fjölskyldumeðlimi til þess að skrifa inn á vefinn, og ef þið lendið í vandræðum með að komast inn í kerfið, hringið þá í Þórdísi, hún hjálpar ykkur við að komast í gang með allt saman.

Bestu kveðjur,
Gunnar Smári og Stína.

fimmtudagur, mars 01, 2007

Eins og hendi væri veifað!

Já eins og hendi væri veifað, þá virkaði þetta allt í einu núna þegar klukkan er að verða 12. Ekki veit ég hvort Þórdísi hefur tekist að gera eitthvað hókus pókus, en allavega þá ´ætla ég að nota tækifærið og segja "SÆL AFTUR" Vona að Gunnari hafi tekist það sama og mér og að við fáum að heyra í honum sem oftast og stelpunum hans líka, Möggu og Jónu.

%&$%/*

Þar sem þið getið væntanlega giskað á hvað þetta þýðir þá skiljið þið að kerfið er ekki að hlýða því sem sagt er.
Gunnar, ég ætla að koma syni mínum í svefn áður en hann gerir út af við afa og ömmu, svo reyni ég aftur.
Kv.
ÞE

testing 1, 2, 3...

Prufa frá Gunnari Smára!

miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Smá leiðbeiningar

Svo virðist sem menn séu í vandræðum með að komast inn, ætla að setjast niður og semja leiðbeiningar um hvernig á að nota þetta tæki svo reynið að vera þolinmóð, ég reyni að drífa mig í þessu.
Menn ættu samt að geta skrifað í athugasemdir, merkja bara við anonymous og þá ætti að vera hægt að senda athugasemd, þá sé ég kannski hverjir eru að lesa þetta fleiri en þegar hafa skráð sig inn.
Kveðja
Þórdís

mánudagur, febrúar 26, 2007

Til hamingju Hidda og Flosi !

Það eru fleiri afmæli í febrúar.
Ég vona að ég sé með rétta dagsetningu og ætla að taka áhættuna og óska Hiddu og Flosa til hamingju með afmælið í dag.

Bestu kveðjur frá Boston þar sem snjóar í augnablikinu, ósköp fallegt um að litast.
Kata

föstudagur, febrúar 23, 2007

Til hamingju Sigga!

Hún Sigga okkar Þrastar á 45 ára afmæli í dag og er á ferðalagi erlendis. Heimilisfang dagsins er óþekkt fyrir okkur flest, en það kemur ekki í veg fyrir að við sendum henni kveðjur í tilefni dagsins.
Kæru Sigga og Lalli! Njótið dagsins í botn!
Knús og kveðjur,

Hidda og Herjolf

Profa að setja mynd


Mig langaði að prófa að setja inn mynd. Þessi er tekin í afmælinu hans Kára og vinir hans Garison og Ethan komu og nutu dagsins með honum. Ég kalla þá jarðaberja, vanillu og súkkulaði því þeir eru í öllum litum. Takið eftir að trukkastrákurinn minn valdi sér muffins með bleiku kremi. Það var reyndar Valentínusardagurinn daginn eftir svo það var mikið af bleikum kökum í búðinni.

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Og þá er það ég...


Svona er nú staðan hjá okkur í dag.
Ég er að vinna hjá Kvos sem er móðurfyrirtæki Prentsmiðjunnar Odda, Kassagerðarinnar, Gutenberg og fleiri. Upphaflega var þetta bara Prentsmiðjan Oddi en ég brá mér í árs barneignarfrí og þá fóru stjórnendurnir yfir um og skiptu fyrirtækinu niður í nokkra hluta. Maður má ekki líta af þeim.
Björgvin vinnur hjá Marel og ferðast mikið um heiminn, hefur m.a. farið til Nýja Sjálands, Ástralíu, Ameríku og núna síðast Svíþjóðar. Hann hefur undanfarið verið í styttri ferðum en annars var hann í þrjár til fimm vikur í útlöndum.
Benedikt fæddist í okt 2005 og er alnafni föðurafa síns. Hann er mikið uppáhaldsbarn enda skapgóður með eindæmum og skemmtilegur. Líkist pabba sínum og afa sínum Einari í skapinu en er reyndar stundum þverari en #$%* og enginn virðist vita hvaðan það kemur. Mig grunar það þó en ég hef ekki hátt um það!
Honum þykir ryksugan skemmtilegust af öllu og stendur við þvottahúsdyrnar og gargar ef hann fær ekki sinn ryksugutíma. Hann er hjá æðislegri dagmömmu meðan ég er í vinnu en þar sem hún er að hætta í haust þá vona ég að hann komist inn á leikskólann þá.
Við erum að byggja okkur hús í Kópavoginum, alveg að klárast og vonandi flytjum við í næsta mánuði. Það verður breyting fyrir okkur sem alltaf höfum búið í smákytrum og núna í einu herbergi hjá foreldrum Björgvins í Grafarvoginum.
Fyrir þá sem vilja fylgjast nánar með framkvæmdum erum við með bloggsíðu undir http://fjallakor.blog.is/blog/fjallakor/ og síðan eru myndir hér: http://www.pjus.is/myndir/fjallakor/
Bestu kveðjur
Þórdís

Fríða skrifar

jæja, þetta gengur víst ekki... verð að viðurkenna það enn og aftur að ég
tilheyri ekki tölvuvæddu kynslóðinni... er sko ekki alin upp með henni
nema að mjög litlu leiti....of gömul eflaust !!
Af okkur hér er bara allt gott að frétta, lífið gengur sinn vanagang dag
eftir dag, viku eftir viku.... og reyndar ár eftir ár. Breytingar eru
eðlilega þær að allir eldast, flestir stækka og aðrir vonast bara til að
stækka.

Í eins stuttu máli og hægt er af börnunum, þá er þetta helst:
Magnús yngstur, 7 að verða 8 ára þann 22.nóvember, afskaplega duglegur og skemmtilegur strákur, bogmaður eins og þeir gerast bestir, fær alla til að brosa, hraustur og hress, er í 2. bekk í Álftamýrarskóla og æfir fótbolta með 7. flokki Fram, ætlar að verða fótboltastjarna þegar hann verður stór. Æfir líka fimleika með UMFKjalarness undir stjór Maríönnu elstu systur sinnar, fyrst og fremst til að liðka sig og hafa gaman.

Katrín 8 ára og alveg að verða 9 ára þann 17. mars. Er í 3. bekk,líka í Álftamýrarskóla og líkar vel, æfir fimleika með Ármanni og UMFKjalarness og er farin að læra á píanó.. svo nú hljóma kunnuleg lög um húsið. Yndisleg stelpa, hraust og hress með mikið jafnaðargeð. Ætlar að verða dýralæknir þegar hún verður stór, staðráðin í því enda mikil dýramanneskja, á páfagauk, hlut í hund hjá Siggu frænku á Ísafirði... sem er þar af leiðandi langbesta frænka hennar (af því að mamman getur ekki bætt hundi inn á heimilið enn sem komið er) á líka eitthvað í hestunum hans Halldórs afa af því að hún er svo dugleg að hjálpa honum í hesthúsinu, vonast til að eignast kettling, en bíður þolinmóð eftir að draumurinn um að eignast eigin hund rætist (það skal þá vera KingCharles)

Halldór Jón S. 10 ára og verður 11ára þann 12.júlí (var aðeins of seinn í heiminn til að ná afmælisdegi Jóns langafa) er í 5. bekk Álftamýrarskóla og gengur afskaplega vel, vel gerður strákur, skemmtilegur og duglegur auðvitað eins og öll hans ætt, æfir fótbolta með 5.flokki Fram, vill gjarnan æfa handbolta og fimleika líka... en þarf að velja.. er að læra á gítar og farinn að spila skemmtileg lög..love me tender og fleiri góð, ætlar að verða rafvirki þegar fótboltaferlinum líkur;)

Maríanna 17 ára að verða 18 ára í október, er alveg að ná hæð mömmu sinnar, (þarf reyndar ekki mikið til... er í Menntaskólanum Hraðbraut á hraðferð og klárar stúdentspróf í júní ef allt gengur upp (eigum svo sem ekki von á öðru) Er formaður skemmtinefndar í skólanum og leiðist það ekki, félagslynd og opin stelpa, stefnir á íþróttalýðháskóla í Danmörku næsta vetur svona til að fá meiri útrás fyrir íþróttaáhugann og leika sér eftir krefjandi skólasetu yfir skruddunum, að því loknu er óvísst hvað tekur við en Listaháskólinn er e-ð sem heillar, hönnun og myndlist
hugsanlega, annars sálfræði eða e-ð mannlegt.... aldrei að vita...þjálfar fimleika á Kjalarnesinu og tekur þátt í 10km hlaupum þegar tími er til..gengur gjarnan á fjöll og reynir að komast á skíði þegar er snjór.

Einar 19 ára og bráðum tvítugur eða þann 11.nóvemer!! ókvæntur og barnlaus og ætlar sko alls ekki að eiga fleiri en eitt barn...mesta lagi tvö... er yfirleitt góður og jákvæður við systkini sín,er í Menntaskólanum við Hamrahlíð og er ekki að flýta sér eins og systirin, góður strákur og ljúfur. vinnur á Dominos með skólanum, hefur mikið gaman af tölvuleikjum...spilar EVE online, á Porsche eins og fleiri í ættinni og "fílar það í tætlur"... finnst samt ekki eins gaman þegar bílinn bilar... líkar bara þokkalega vel á hótel mömmu,...óvísst hvað framtíðin ber í skauti sér....

Þórður maðurinn minn, vinnur á fasteignasölunni Akkúrat svo ef þið þurfið að selja eignir þá er langbest að snúa sér til hans auðvitað, er líka kominn í nám í Mannauðsstjórnun í HÍ og líkar það vel, krefjandi og tímafrekt en gaman, er reglulega í ræktinni enda meðvitaður um heilbrigðan lífsstíl eins og aðrir í fjölskyldunni, gengur gjarnan á fjöll og tekur alla með sem vilja, er líka nuddari og nuddar fjölskyldu og aðra sem óska eftir því þegar hann hefur tíma, þjálfar fótbolta á Kjalarnesinu.. er frábær faðir barna sinna

Og svo ég sjálf,bara eins og fyrr, reyni að láta hlutina ganga á heimilinu og vera börnum mínum góð fyrirmynd (tekst alls ekki alltaf) kenni íþróttir í Menntaskólanum í Reykjavík, kenni einnig 6 ára börnum í íþróttaskóla Álftamýrarskóla og Háteigsskóla, kenni konum á Kjalarnesi heilbrigðan lífsstíl með góðri hreyfingu, er "formaður" umfKjalarness og skipulegg íþróttastarfið þar, langar að bæta við mig master í lýðheilsu(gerist bara síðar).. ferðumst eins og kostur er með fjölskyldunni þegar tækifærin gefast, þá helst á fjöll eða fallega staði á landinu, er á leið til Búdapest í apríl með MR-ingum, finnst að sólarhringurinn ætti að vera lengri svo hægt sé að sinna áhugamálum..langar að dansa og syngja.... getur einhver sagt mér hvar maður finnur þennan frítíma... veit það eru danstímar hjá eldriborgurum...get alltaf huggað mig við það og hlakkað til!

Þessi rommsa dugar í bili, veit ekki hvort þið sjáið þetta og það verður þá bara að hafa það.... verið dugleg að skrifa fréttir, hittumst í vor ALLIR!!
b.kv.Fríða H

gaman að heyra frá ykkur Hidda og Kata!!

mánudagur, febrúar 19, 2007

Hvar eru strákarnir í familíunni?

Það hefur verið virkilega skemmtilegt að heyra í ykkur öllum sem þegar hafa skrifað á bloggið okkar. Hver veit nema að þetta eigi nú eftir að stuðla að aðeins meiri samskiptum, jafnvel tíðari heimsóknum eða ættartreffum.
Ella Tóta Halldór og Flosi, eruð þið ekki ÖRUGGLEGA búin að láta öll börnin ykkar og barnabörnin vita? Og Gunnar Smári? Sem ekta Hlíðarvegspúki ert þú hér með gerður ábyrgur fyrir öllu þínu fólki, systkinum og þeirra fólki. Það þarf að senda Þórdísi bloggstjóra netpóstföng sem flestra svo þeir geti verið með. Og Stella Þú hlýtur að hafa netföng Flosa og Kristjáns og Jónu.
Svo viljum við heyra í strákunum líka! Gunnar Þorsteinn, ertu nokkuð dauður? Og Höddi og Palli? H A L L Ó !

Kveðjur í allar áttir, Hidda

Tilraun 2 frá Elsu pelsu


Sæl verið þið öll sömul nær og fjær, fædd og ófædd!
Voða er gaman að heyra að það sé alltaf að fjölga í fjölskyldunni. Innilega til hamingju Kata! Mikið eruð þið eitthvað orkumikil!!! Ég myndi nefnilega ekki meika það þriðja þótt lífið lægi við!!!

Í gær sat ég sveitt við tölvuna í 2 tíma við að skrifa bréf og senda inn myndir á þessa nýju og spennandi bloggsíðu en svo gerðist eitthvað og allt hvarf. Ég komst svo ekkert meir inn á neitt þannig að ég varð eitthvað pirruð og hætti. Þar lýsti ég hins vegar yfir ánægju minni yfir framtakinu, þakkaði Þórdísi í hástert, tók undir með Fríðu að við ættum endilega að fara að hittast og fleira og fleira. Svo kom svaka pistill um sitthvað sem við hér í Grundarlandinu erum að bardúsa, en ég nenni bara engan veginn að endurtaka allt saman þannig að þeir sem lesa verða bara að treysta á það að eitthvað slíkt slæðist með þegar ég skrifa í næstu skipti. Vonandi verða þau nú nokkur!

Ég er hins vegar að spá í að gera aðra tilraun með að setja inn mynd af litlu stelpunum mínum 2 og 1/2! Hver veit nema það takist í þetta sinn!

Meira seinna,
knús, Elsa


Er þetta ekki tilvalinn staður...

... til að segja alvöru fréttir?
Ég held að allir mínir nánustu séu búnir að frétta eftir aðeins persónulegri leiðum en núna kem ég þessu áleiðis til allra hinna.

Við eigum nefnilega von á barni númer þrjú !

Ef allt gengur eðlilega fyrir sig þá er áætlaður komutími í lok ágúst svo deigið er rétt að byrja að hefast. Þetta er aðalástæðan fyrir því að við verðum ekkert á ferðinni á Íslandi í sumar en planið er að koma um áramótin að sýna afkvæmið.

Kannski getum við stillt upp einhverjum hittingi þá.

Kveðja
Kata og krílið

laugardagur, febrúar 17, 2007

Hidda skrifaði i "gamla" kerfið

Sem sannur Hlíðavegspúki vil ég byrja á að þakka Þórdísi Einars fyrir
framtakið og vona að sem flestir verði með í þessum spjallhring. Ég
er núna fyrst að sjá þetta og eiginlega veit ég ekki hvort ég er að
svara Kötu eingöngu eða hvort ég er að senda það fleirum. Allavega:
H'URRA FYRIR ÞORD'ISI!!
Það var gaman að lesa "langlokuna hennar kötu eins og hún valdi sjálf
að kalla bréfið sitt. Það lagði líka línuna fyrir okkur hin um hvernig
við eigum að hafa þetta. Hugsið ykkur hvað þetta verður skemmtilegt
ef allir taka þátt og senda inn smá fréttapistil af og til og jafnvel
myndir líka. Er það ekki hægt?
Það er samt ekki margt að frétta hjá okkur annað en það að Herjolf er
allur að hressast eftir veikindin undanfarna mánuði og hann þyngist
hægt og bítandi. Árni er í háskóla í Arkansas og kemur ekki heim fyrr
en í byrjun maí. Þá kemur hann heim til að klára síðustu önnina á
Bifröst og vinna að ba.ritgerðinni. Eftir það fer hann til Georgíu til
að sinna ástarmálum og ritgerðarmálum. Hulda er í mömmó úti í Lundi
og er alsæl með sína litlu Elínu Snæfríði Maximilliamsdóttur Conrad.
Elsukrílin, Guðrún og Hidda litla dafna líka vel og eru eins
yndislegar og allar ömmur geta best hugsað sér.
Vonast til að heyra í ykkur sem flestum, sérstaklega þeim sem sjaldan
heyrist frá. Ég skora til dæmis á Gunnar Smára að senda línu. Á ekki
Magga Gunnhildur annars þrítugsafmæli í dag? Jú ég held það bara og
óska henni að sjálfsögðu til hamingju með það. Og Jóna! Á hún ekki
líka afmæli? já og Sigga Þrastar eftir nokkra daga og kannske
eitthvað fleira gott fólk líka!!!
Já krakkar (púkar) mínir, bæði gamlir og ungir, verið með og sendið
línu!
Kærar kveðjur til allra!
Hidda

Kata skrifaði i "gamla" kerfið

Mikið er ég fegin að þetta virkaði !
Þá get ég byrjað með einhverjar fréttir af mér og mínum.
Við erum búin að vera hérna á Boston svæðinu í rúm 7 ár og verðum í 2 og hálft í viðbót. Núna búum við í bæ suðvestur af Boston sem heitir Dedham og er í ca 30 mín akstursfjarlægð frá borginni. Við keyptum lítil gamalt hús hérna og ætlum að halda okkur hérna þangað til við flytjum heim.
Ég er að vinna ca eina 12 tíma vakt í viku á almennri gjörgæsludeild á Boston Children´s Hospital. Þetta er mjög góð tilbreyting við að vera heima með krakkana alla vikuna og kennir mér að meta það hvað ég á það gott að eiga heilbrigð börn og geta eytt vikunni með þeim.
Tjörvi er búinn með sérnámið sitt en er að taka eitt ár í undirsérgrein sem er svæfing hjartasjúklinga. Vinudagurinn er oft langur, hann er farinn klukkan 5:30 á morgnanna og kemur sjaldnast heim fyrr en um 18-19 á kvöldin. Eftir að hann klárar það, í júlí á þessu ári, byrjar hann á tveggja ára prógrammi sem er sambland af
klínískri vinnu sem sérfræðingur, rannsóknarvinnu og tímasókn í því hvernig á að stjórna stórum rannsóknum. Planið er svo að hann geti stjórnað sínum eigin rannsóknum þegar við erum flutt heim svo hann verði ekki leiður á því að svæfa og vekja allan daginn.
Edda Brynja er orðin 10 ára gömul og er ósköp dugleg í skólanum og í fimleikum. Hún á stórann vinkonuhóp og það eru reglulega "sleep-over" og "play-dates". Hún er mjög hjálpsöm og góð við bróðir sinn. Kári Karl er nýorðinn þriggja ára og er líka í fimleikum. Hann er heima hjá mömmu sinni en byrjar í smá skóla í haust.
Allir eru við hestaheilsu og þess dagana erum við að halda á okkur hita í þessu kuldakasti sem við erum í núna.
kv
Kata

Friða skrifaði i "gamla" kerfið

Hæ,hó kæru frændsystkin nær og fjær
Takk Þórdís fyrir að koma þessu kerfi á! Ég er sjálf illa að mér í
svona tölvutækni en fagna þessu fyrirkomulagi og vona að mér takist að
senda póst. Þetta er því prufusending

Ég vil endilega að við skellum á "hittingi" með vorinu, eða í vor, við
frændsystkinin og gerum okkur glaðan dag. Fjölskyldur okkar stækka og
stækka og við fjarlægjum öll og það þykir mér miður. Þekkjum við öll
hvert annað?? Mér finnst að við ættum að gera það að reglu að hittast
árlega á einhverjum ársfjórðungnum, vorið finnst mér alltaf gott.

Hvað segið þið um það? endilega sendið netföng til Þórdísar og þá er
kominn nethópur b.kv.Fríða Halldórs.

(innskot frá ÞE, einhverra hluta vegna vill Makkinn ekki setja broddstafi í titilinn, laga það þegar ég nenni að ræsa lampavélina inni í herbergi! :o))

Þeir sem eru komnir inn:

Eru:
Fríða Halldórs *
Einar Halldórs
Gunnar Halldórs
Elsa
Hulda *
Hidda *
Ella
Alla
Höddi
Þórdís *
Palli
Gunnar
Kata *
Dagný *
Sigga *
Þórir
Gunnar Smári
Magga Gunnars Smára
Laufey hans Flosa

Þeir sem eru með stjörnu hafa skráð sig inn skv. google. Hinir eru áfram óskráðir þó ég hafi sent þeim póst, hugsanlega vegna þess að ég er með vitlaust netfang.
Kv
ÞE

Þetta ætti að verða auðveldara

Ætla að senda þetta á hina og sjá hvort þeir eigi ekki auðvelt með að pósta hérna. Lista svo hérna hverjir hafa fengið sent, tek fram að ég set engin netföng á síðuna sjálfa er að reyna að takmarka spam eins og hægt er.
Kveðja
ÞE

föstudagur, febrúar 16, 2007

kata prufar

Ok sorrý Þórdís ég opnaði hinn póstinn fyrst. Núna sá ég auðvitað rétta linkinn og allt lítur vel út.

Ætla að prófa að senda....

Prufa

Ætla að athuga hvort auðveldara sé að tjá sig hér en á hinum staðnum.
Menn sem hafa réttindi (sem hafa fengið póst um það) eiga að geta smellt á "new post" efst í hægra horninu eftir að hafa loggað sig inn.
Sjáum hvort þetta gengur ekki betur.
ÞE

Prufa

Ætla að athuga hvort auðveldara sé að tjá sig hér en á hinum staðnum.
Menn sem hafa réttindi (sem hafa fengið póst um það) eiga að geta smellt á "new post" efst í hægra horninu eftir að hafa loggað sig inn.
Sjáum hvort þetta gengur ekki betur.
ÞE