þriðjudagur, apríl 10, 2007

Kveðja fra Vopnafirði

Komiði öll blessuð og sæl og gleðilega eftirpáska.

Gaman að sjá að líf er farið að færast í bloggmenningu ættarinnar, Höddi kominn inn og þau “gömlu” í Fagraholtinu. Ég vissi það að með þrjóskunni hefðist þetta allt, það er að segja ef þrjóskunni er beint í rétta átt. Þá er bara að reyna að virkja þá Edda, Flosa og Stebba inn í menninguna og að sjálfsögðu alla niðjana.

Af okkur er allt gott að frétta, að sjálfsögðu nýliðnir páskar með tilheyrandi áti og afslöppun. Eitt skyggði þó á páskaánægjuna, við vorum ein (snökt), engin börn eða barnabörn eða tengdabörn. Reyndum samt að gera gott úr öllu saman og vorum í daglegu og stundum oft á dag sambandi við þau öll. Reyndar þegar betur er að gáð þá vorum við ekki alveg ein því að Hreiðar og Anna (kærastan hans) komu í mat til okkar á annan í páskaeggi. Þau eru reyndar að fara til Benidorm 22. eða 23. þessa mánaðar, ætla sko að vera í heilar 4 vikur takk fyrir. Geri aðrir betur 79 ára og alveg að verða 80 ára gömul bæði tvö. Þetta kallar maður að njóta lífsins í botn. Verst að mér hefur ekki tekist ennþá að koma víndropa ofan í kallinn, hann hefur reyndar lofað mér því að á níræðisafmælinu sínu þá ætli hann að fá sér ærlega neðaníðí með mér.
Ég er reyndar líka að fara á erlenda grund, ætla að skreppa tíl Svíþjóðar og Danmerkur í vikutíma. Ætla að heimsækja æskuvin minn sem býr í Svíþjóð, verð þar í tvo daga, restina af ferðinni verð ég hins vegar hjá hálfbróður mínum honum Kára, strákurinn verður fimmtugur og þarf á handleiðslu sér eldri og reyndari bróður að halda. Þetta verður svona stráka ferð hjá mér, ég skil Stínu eftir í barnabarnaleik í Hveragerði á meðan. Hún er reyndar sjálf að fara 3. maí til Frakklands í tólf daga ferð með vinkonu sinni og mágkonu, það er svona kvennaferð á Bretagne skagann. Æðislega spennandi finnst þeim að sjáfsögðu. Þær koma til með að gista hjá ættingjum og vinum vinkonu hennar Stínu sem er frönsk og verður það sjálfsagt mikil upplifun.
Sem sagt, gleði gleði gleði......
Bestu kveðjur til ykkar allra., og verið nú dugleg að blogga og senda inn myndir.
Gunnar Smári og Stína á Vopnafirði,
sem er nú ekkert voðalega langt í burtu frá ykkur hvarsvosemþiðeruðniðurkomin.

2 ummæli:

Hidda sagði...

Hæ Gunnar og reyndar allir hinir líka!Eftir yndislega ferð til Ísafjarðar um páskana VERÐUM við Herjolf að koma á framfæri kærum kveðjum og þakklæti fyrir móttökurnar.Ella og Einar og fjölskylda, Flosi og laufey, Dagnýarfjölskylda, Sigga og Lalli, Þórir og Ragnheiður,Tóta og hennar hópur, Eydís og Tóti með sitt væntanlega litla kríli, já fjölskyldan bara stækkar og stækkar og ég vil meina að nú sé kominn tími á nýtt ættarmót. Það er sennilega of seint að ná til allra nú í sumar, en næsta sumar ætti að verða frábært.Við verðum bara að koma okkur saman um góða dagsetningu; stað og stund sem allir geta sætt sig við og síðan FJÖLMENNA! Tillögur og komment óskast frá sem flestum.
KV:HIDDA SEM KEMST EKKI LENGUR INN Á BLOGGIÐ!

Nafnlaus sagði...

ég er til í ættarmót.. :) kv. Eydís