Sæl verið þið og takk fyrir síðast! Loksins komst ég inná síðuna okkar eftir mikið basl á minni tölvu. Núna er ég að passa hjá Elsu og laumaðist í tölvuna hennar og pling, ekkert mál að komast inn þar. Skrýtið! Þarf að fara að bjóða Þórdísi í kaffi og vöfflur til að sjá hvort það virkar!Það sem helst er í familíufréttum er annars það að Ólafur tengdasonur er að spila í kvöld á Kjarvalsstöðum og þessvegna vantaði barnapíu. Elsa í miðasölunni eins og góðri eiginkonu sæmir og Hidda litla ein heima í Grundarlandskoti. Nú er hún loksins sofnuð svo það er hægt að Hlíðarvegspúkast aðeins.
Af Huldu er það að segja að hún og Max eru núna í Þýskalandi og verða líklega á faraldsfæti næstu vikuna eða tvær í Brussel og víðar, annars veit ég ekki alveg hvernig ferðaplanið er hjá þeim. Aftur á móti er Árni væntanlegur heim frá Arkansas um næstu helgi en fer sennilega samdægurs upp að Bifröst til að ljúka síðustu önninni. Það versta er að það ber uppá sömu helgi og einn góður Hlíðarvegspúki fyrir Westan ætlar að halda uppá merkisdag í lífi sínu.
Ugla sat á kvisti.....átti börn og missti.......Æ hversvegna þarf lífið að vera svona flókið!!!
sunnudagur, apríl 29, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Isss... þú ferð bara keyrandi vestur, kemur við hjá Árna, ferð í dúndurpartý hjá Hlíðarvegspúkanum, keyrir suður aftur og kemur við hjá Árna og málið dautt! :o)
Eða hvað?
Þórdís
Elsku Hidda mín , ég er alveg sammála ÞE. sumarblíðan býður upp á rólegan bíltúrtil Ísó,með Árna og fleiriættingja í farteskinu. Nóg er húsrýmið á öllum bæjum. og ekki amalegt að eyða góðri stund í faðmi fjalla blárra,í glæsilegu samkomuhúsi í Engidal, við árnið og fuglasöng,(engin ber ennþá þó tíðin hafi verið góð). Og mundu !Það er ekkert lengra frá Reykjavík til Ísafjarðar, en frá Ísafirði til Rvíkur. Gleðilega hátíð öll nær og fjær.
Æi... þið eruð svo sætar! nú er ennþá erfiðara að hugsa..........!
Hidda mín. Takk fyrir síðast mikið var gaman að fá ykkur í heimsókn til okkar Lalla. Vonandi varð ykkur ekki illt af rækju skonsu tertunni.
Ég er sammála stelpunum. Bara skella sér Westur og taka Árna með.
hvað er langt síðan hann hefur komið? Ég man eftir mynd sem var tekin á áramótum hjá Dagnýu og Halldóri á Hlíðarvegi 25 mér sýnist Kristófer vera 2ja eða 3ja ára, hann er á ellefta ári núna. Hefur Árni komið síðan??
Hlakka til að sjá ykkur öll í afmælisveislu aldarinnar. Það eru allir velkomnir og þó að Einar hafi ekki boðið öllum persónulega þá sagði hann mér, bara núna í kvöld, að hann hafi verið að hugsa um að senda boð til allra Hlíðarvegs 25 púka en ekki haft tíma til að kynna sér inngönguprotokolið á síðuna.
Þessu er hér með komið til skila.
Svona drífasig. Sjáumst í Sigurðarbúð á laugardaginn kl 7 eða 8.
Kveðja til ykkar allra frá Siggu Þrastar
Þið misskiljið þetta aðeins elskurnar mínar! Arni kemur ekki fyrr en á sunnudag frá Bandar. og á að mæta í tíma strax á mánudagsmorgni.
Já, ok þá vandast málið aðeins.
Árni verður sem sagt ekki kominn þegar afmælisveislan verður.
Æ en leiðinlegt.
Þú finnur út úr þessu Hidda mín.
Hlakka til að sjá þá sem koma.
Kveðjur frá Ísafirði.
Skrifa ummæli