Hæ allir
Bara að láta vita að sonur minn og eiginmaður eru á leiðinni til Íslands í stutta heimsókn. Þeir lenda í fyrramálið og munu líklega sjást við hina ýmsu sundstaði og útsölustaði SS-pylsna um Reykjavík og nágrenni fram á miðvikudag. Tjörvi hefur ekki náðst ógrettur á mynd í áraraðir en hér til hægri er Kári Karl, fylgdarmaður hans.
Við mæðgurnar (2 og 1/2) ætlum að hafa það náðugt heima á meðan við erum lausar við þessa morgunhana. Hér verður sofið út, vakað frameftir og ekki leikið í sandkassanum í 5 heila daga ! Ætli þurfi nokkuð að sópa eða þvo þvott allan þann tíma.
Þið kastið á þá kveðju frá mér er þið rekist á þá.
Kata.
4 ummæli:
Vá gaman hjá þeim að koma í strákaferð. Fyrsta og örugglega ekki sú síðasta.
Ég verð líklega í RVK eftir helgi. Er að fara að sýna hundinn á veiðihundasýningu 13/05.
Ég þarf að koma óvæntum glaðningi til ykkar á hann. Verður hann með síma?
Ég sendi þér tölvupóst með símanúmerum og fleiru.
Vonandi komast þeir feðgarnir í fleiri strákaferðir og við stelpurnar kannski í einhverjar stelpuferðir (í eitthvað gott spa). Núna þarf ég að fara með yngri ferðalanginn í bíltúr svo hann sofni og verði ekki Skúli Fúli á flugvellinum í kvöld.
Kveðja til Tjörva og litla Kára Karls:
Það verður gaman að hittast og fá að sjá hvað hann hefur breyst frá í fyrra. Heimboð hjá mér/og eða Elsu! Þið nefnið sjálfir stað og stund. (ég kann að baka æðislegar vöfflur)
Takk fyrir það Hidda. Ég læt hann vita af heimboði en þori auðvitað engu að lofa um hverju þeir koma inn í dagskránna hjá sér.
Kata
Skrifa ummæli