Heil og sæl, þið sem ennþá kíkið hingað inn af og til
Mig langaði bara að nota þennan vetvang til að senda ykkur jólakveðju, sérstaklega þeim sem lentu ekki á jólakortalistanum mínum í ár. Hérna megin við pollinn er orðið jólalegt um að litast. Hvítur snjórinn hylur, næstum því, græna grasið og brúnu laufblöðin sem ekki náðist að raka upp áður en það snjóaði og fraus allt í einu. Ljósin komin upp fyrir utan og tréð í stofunni að amerískum sið. Set með mynd af örverpinu og systkinum hennar. Þeir sem fá eins mynd í jólakorti verða bara að sjá sömu myndina tvisvar.
Kv Kata og co Dedham, Massachusetts
1 ummæli:
Jólakveðjur til ykkar sömuleiðis.
Á ennþá eftir að fara með drenginn í myndatöku svo ekki set ég myndir af honum hér. :|
Ætli við séum ekki bara tvær eftir sem kíkjum hérna inn?
Kveðja til allra
Þórdís
Skrifa ummæli