Þeir hrynja inn nýju púkarnir og hérna er mynd af mínu framlagi. Við mæðgur komum heim í gær og Anja Valborg Perry Tjörvadóttir er með afbrigðum góð og yndisleg. Grætur ekki nema þegar einhver dirfist að skipta á henni. Stóru systkinin taka henni mjög vel og algengasta setningin á þessu heimili er "Oh, hún er svoooo sæt!". Því mótmælir heldur enginn af okkur hinum.
Þrátt fyrir að vera talin "of"bökuð var hún bara 13.5 merkur og 50 cm, alveg mátulega stór fyrir mig. Fæðingin gekk vel, svo vægt sé tekið í árina margfrægu. Tók 32 mínútur frá fyrsta vonda verk og allir sluppu án teljandi áverka.
Kveðjur frá Boston.
Kata, Tóta og afkomendur.
2 ummæli:
Gútsí gútsí! Mar segir nú ekki annað!
Hún er álíka stór og BB2 þegar hann fæddist, alveg mátuleg. Og þessi setning "OH hún er svoooooo sæt" á alveg við.
Til hamingju aftur.
Þórdís
Til lukku með stelpuna. Ekkert smá myndarleg pía þarna á ferðinni:) með kveðju Eydís og fjölskylda ;)
Skrifa ummæli