mánudagur, mars 19, 2007

Þetta smá mjakast hjá okkur!

Sæl aftur og takk fyrir síðast! Já og velkomin á bloggið okkar Ella og Flosi! Það var orðið hálf fúlt að vera sú eina af "eldri kynslóðinni" sem reyndi að vera með í þessu, en nú virðist vera kominn skriður á hlutina fyrst fleiri eru að bætast við. Samt er ég nú að vona að þið sem yngri eruð, semsagt börn og barnabörn okkar upphaflegu Hlíðarvegspúkanna, farið að láta oftar í ykkur heyra. Tilgangurinn með síðunni var jú einmitt sá að stuðla að sambandi ykkar á milli, svo ættartengslin gliðni ekki svona fljótt. Sjálfri finnst mér alveg drullufúlt að börnin mín þekki ekki öll börnin hinna systkina minna og þá ekki heldur þeirra börn. En tíminn líður svo fljótt og þau ykkar sem voru með horinn niður á maga fyrir nokkrum andartökum síðan eins og Gunnar Smári orðaði það svo undurfallega í gær, eruð dreifð um víðan völl og hittist varla nema við jarðarfarir eða eitthvað enn minna skemmtilegt. Og þá er jafnvel spurt: "Mamma hverjum varstu að heilsa?" ´"Nú þetta var hún Halldóra Víðisdóttir hennar Jónu hans Adda, .....eða.... hann Kalli Stebbason hennar Öllu,......... eða.... Hva!.. mannstu virkilega ekki eftir henni Ingu Stínu hans Flosa hennar Öllu?"
Svona nú, látið í ykkur heyra! Hver veit nema ykkur verði þá smalað saman á ættartreff í sumar. Þá væri nú gott að vera búin að fá að vita smávegis um hvað þið eruð að gera, að hugsa, eða að hugsa um að gera.
Kveðja til allra, Hidda.

Engin ummæli: