Komið þið sæl og blessuð öll fjölskyldan. Það er eins og með margt annað, að það er búið að taka sinn tíma að koma sér að verki og fara að gera eitthvað af viti hérna á síðunni. Það er orðið ansi langt síðan ég hef hitt flest ykkar, og þau ykkar sem ég hef þó hitt, þá hefur það verið fyrir algera slysni, en svona er þetta bara.
Eins og sum ykkar vita, þá er ég búsettur í Mývatnssveit, og hef búið undanfarin ár. Ég er að vinna fyrir verktakafyritæki hérna á svæðinu, (ennþá í sandkassanum :) ) og kann bara vel við mig hérna.
Við erum fjögur í heimili, sambýliskonan mín heitir Jónína Baldursdóttir (40), yngsta dóttir hennar, Steinunn Ósk (10), og svo perlan mín hún Álfheiður Kristín (11), sem hefur búið með okkur í vetur,
Og svo ég (39) svo að glöggir lesendur sjá að meðalaldur fjölskyldunar er rétt tuttugu og fimm ár :)
Ég er mikið búinn að leita að heimildarmynd af okkur, en ekki fundið neina (alltaf einhver á bak við myndavélina) En ég finn eitthvað………
Kær kveðja í bili……
Hörður Sigurjón Karlsson
Birkihrauni 7
660
Reykjahlíð
Mývatn
Vision@mi.is S 4642201-8454960
Nei engin mynd núna...
sunnudagur, mars 25, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Það má setja inn fleiri en eina mynd! :o)
Ég sem hélt mig hafa séð þig á götu um daginn, gat bara ekki hlaupið á eftir þér þar sem sonur minn þyngdi mig aðeins. Sem er kannski eins gott því ég hefði líklega verið að hlaupa á eftir einhverjum bláókunnugum.
Kveðja
Þórdís
Gaman að heyra frá þér Höddi ! Ég held ég hafi ekki séð þig síðan á einhverjum bar á Hverfisgötunni fyrir 9 eða 10 árum síðan ! Ég hugsa að ég myndi þekkja svipinn á götu en það væri gaman að fá eina eða tvær myndir af familíunni. Hvað er að frétta af Stebba bróður þínum? Hann hef ég ekki séð í meira en áratug og myndi klárlega labba framhjá honum á Laugarveginum.
Kv
Kata
Sæl öllsömul og sérstakl. Höddi og aðrir þeir sem hafa komið inná síðuna undanfarið. En það er ekki hlaupið að því að komast inn; undanfarna daga hefur engum í minni fjölskyldu tekist að opna hana til að senda myndir og ýmislegt. EITTHVAÐ ER AÐ, EN ENGINN VEIT HVAÐ, OG EKKI SÉST ÞÓRDÍSI ENN TAKAST ÞAÐ...........
brrrrrrrr....kv. Hidda
Sæl og blessuð öll..
Svona til að upplýsa fólk, þá er harla ólíklegt að ég sjáist á vappi í bænum,ég fer einhverra hluta vegna sjaldan suður. Svo að ef þið sjáið mig í bænum, hnippið þá í mig og spyrjið mig að því hvort ég er ekki örugglega ég áður en þið heilsið mér.....?? Hmmm....
Ég hef svo sem ekki miklar fréttir af Stefáni aðrar en þær að hann býr í R.vík, vinnur við rafvirkjun, og..... hefur það bara þokkalegt, að sögn
En Kata... Heldurðu að þetta hafi ekki bara verið maðurinn sem Þórdís ætlaði að heilsa, þarna á pöbbnum um árið, man ekki alveg sko..... :)
Ja þá þekkir þessi tvífari þinn vel til þinna persónulegu málefna því við spjölluðum heilmikið. Þetta var á bar sem var á horninu handan götunnar frá Íslensku Óperunni. Lítill pöbb sem var tiltölulega nýopnaður þarna, ef ég man rétt.
Hringir þetta einhverjum bjöllum?
hm...hm........ Hvað var Höddi að gera á bar á Hverfisgötunni sem einhver gömul frænka rifjar upp 10 árum seinna!
PLING PLING! Djöfull eru margar bjöllur sem hringja!!!!
Jújú.. Þetta hringir einhverjum bjöllum, í fjarska :)
En hvernig er það eiginlega, er ungdómurinn í ættinni allur fluttur á mölina ?
Skrifa ummæli