laugardagur, mars 24, 2007

Kveðjur frá Huldu og Elínu Snæfríði

Hæ og hó fjölskylda
Bara stutt í dag því ég er að prufa hvort ég fatti forritið, ef það virkar allt hjá mér þá skal ég skrifa betur við allra næsta tækifæri.

En fyrst þetta :
Ég og litla 6 mánaða hosan mín hún Elín Snæfríður erum í örstuttri heimsókn hjá Hiddu ömmu og Herjolfi afa, venjulega búum við í Lundi í Svíþjóð og í Osló. Í dag kom Þórdís í heimsókn og var að sjálfsögðu með Benedikt litla með sér. Myndin var tekin við það tækifæri.
Meira seinna, bestu kveðjur, Hulda

3 ummæli:

Hulda Herjolfs sagði...

Útskýring með myndinni:

Efst frá vinstri er Hulda, með Elínu Snæfríði í fanginu. Hidda dóttir Elsu við hlið Huldu. Þórdís er í miðjunni til vinstri með Benedikt sinn. Elsa er svo til hægri við hana (með fléttur) og með Guðrúnu eldri dóttur sína í fanginu.

Kata sagði...

En gaman að sjá framan í ykkur allar með krílin ykkar. Það væri gaman að fá fleiri af Elínu Snæfríði svona "up-close" svo maður sjái hverjum hún líkist skvísan litla.

Vona að þið mæðgur hafið það gott í heimsókninni ykkar til Íslands og við hittumst einhverntímann í náinni framtíð.

Kv
Kata

Ella sagði...

Takk fyrir myndina Hidda og velkomin heim Hulda mín, gaman að sjá ykkur mæðgur á landinu og enn skemmtilegra að vita til þess að þið hafið getað hittst og náðst á mynd. Það fer aftur á móti ekki á milli mála, hverjum finnst ekkert gaman að vera eini strákurinn í hópnum. Það skánar kannski þegar hann eldist. Héðan er annars allt gott að frétta, aðal samkomu tímabilið yfirstandandi og stutt á milli stórra atburða Árshátíðir hjá grunnskólunum bæði á Ísafirði og í Víkinni , þar sem börn og barnabörn leika syngja og dansa af mikilli innlifun,Sólrisuhátí Menntaskólans nýafstaðin með miklum glæsibrag og svo runa tónleika af öllu tagi. Í gær fórum við fyrst út í Bolingarvík (það reyndist bílfært báðar leiðir) og horfðum á Hafstein Árna og Björn Matthías, Önnu Ólafíusyni, og Björgúlf Pallason,syngja, og leika á árshátíð, brunuðum svo aftur á Ísó til að hlusta á kór Menntaskólans í Hamrahlíð (ólýsanlega góður) og svo beint í dinnér á vegum HG með Flosa Laufeyju og Eydísi tvöföldu,sem átti reyndar tvítugsafmæli á fimmtudaginn var.Það er semsé ekki aldeilis tíðindalaust á vesturvígstöðvunum. Bless í bili Ella