laugardagur, febrúar 17, 2007

Hidda skrifaði i "gamla" kerfið

Sem sannur Hlíðavegspúki vil ég byrja á að þakka Þórdísi Einars fyrir
framtakið og vona að sem flestir verði með í þessum spjallhring. Ég
er núna fyrst að sjá þetta og eiginlega veit ég ekki hvort ég er að
svara Kötu eingöngu eða hvort ég er að senda það fleirum. Allavega:
H'URRA FYRIR ÞORD'ISI!!
Það var gaman að lesa "langlokuna hennar kötu eins og hún valdi sjálf
að kalla bréfið sitt. Það lagði líka línuna fyrir okkur hin um hvernig
við eigum að hafa þetta. Hugsið ykkur hvað þetta verður skemmtilegt
ef allir taka þátt og senda inn smá fréttapistil af og til og jafnvel
myndir líka. Er það ekki hægt?
Það er samt ekki margt að frétta hjá okkur annað en það að Herjolf er
allur að hressast eftir veikindin undanfarna mánuði og hann þyngist
hægt og bítandi. Árni er í háskóla í Arkansas og kemur ekki heim fyrr
en í byrjun maí. Þá kemur hann heim til að klára síðustu önnina á
Bifröst og vinna að ba.ritgerðinni. Eftir það fer hann til Georgíu til
að sinna ástarmálum og ritgerðarmálum. Hulda er í mömmó úti í Lundi
og er alsæl með sína litlu Elínu Snæfríði Maximilliamsdóttur Conrad.
Elsukrílin, Guðrún og Hidda litla dafna líka vel og eru eins
yndislegar og allar ömmur geta best hugsað sér.
Vonast til að heyra í ykkur sem flestum, sérstaklega þeim sem sjaldan
heyrist frá. Ég skora til dæmis á Gunnar Smára að senda línu. Á ekki
Magga Gunnhildur annars þrítugsafmæli í dag? Jú ég held það bara og
óska henni að sjálfsögðu til hamingju með það. Og Jóna! Á hún ekki
líka afmæli? já og Sigga Þrastar eftir nokkra daga og kannske
eitthvað fleira gott fólk líka!!!
Já krakkar (púkar) mínir, bæði gamlir og ungir, verið með og sendið
línu!
Kærar kveðjur til allra!
Hidda

Engin ummæli: