mánudagur, febrúar 19, 2007

Tilraun 2 frá Elsu pelsu


Sæl verið þið öll sömul nær og fjær, fædd og ófædd!
Voða er gaman að heyra að það sé alltaf að fjölga í fjölskyldunni. Innilega til hamingju Kata! Mikið eruð þið eitthvað orkumikil!!! Ég myndi nefnilega ekki meika það þriðja þótt lífið lægi við!!!

Í gær sat ég sveitt við tölvuna í 2 tíma við að skrifa bréf og senda inn myndir á þessa nýju og spennandi bloggsíðu en svo gerðist eitthvað og allt hvarf. Ég komst svo ekkert meir inn á neitt þannig að ég varð eitthvað pirruð og hætti. Þar lýsti ég hins vegar yfir ánægju minni yfir framtakinu, þakkaði Þórdísi í hástert, tók undir með Fríðu að við ættum endilega að fara að hittast og fleira og fleira. Svo kom svaka pistill um sitthvað sem við hér í Grundarlandinu erum að bardúsa, en ég nenni bara engan veginn að endurtaka allt saman þannig að þeir sem lesa verða bara að treysta á það að eitthvað slíkt slæðist með þegar ég skrifa í næstu skipti. Vonandi verða þau nú nokkur!

Ég er hins vegar að spá í að gera aðra tilraun með að setja inn mynd af litlu stelpunum mínum 2 og 1/2! Hver veit nema það takist í þetta sinn!

Meira seinna,
knús, Elsa


Engin ummæli: