Mikið er ég fegin að þetta virkaði !
Þá get ég byrjað með einhverjar fréttir af mér og mínum.
Við erum búin að vera hérna á Boston svæðinu í rúm 7 ár og verðum í 2 og hálft í viðbót. Núna búum við í bæ suðvestur af Boston sem heitir Dedham og er í ca 30 mín akstursfjarlægð frá borginni. Við keyptum lítil gamalt hús hérna og ætlum að halda okkur hérna þangað til við flytjum heim.
Ég er að vinna ca eina 12 tíma vakt í viku á almennri gjörgæsludeild á Boston Children´s Hospital. Þetta er mjög góð tilbreyting við að vera heima með krakkana alla vikuna og kennir mér að meta það hvað ég á það gott að eiga heilbrigð börn og geta eytt vikunni með þeim.
Tjörvi er búinn með sérnámið sitt en er að taka eitt ár í undirsérgrein sem er svæfing hjartasjúklinga. Vinudagurinn er oft langur, hann er farinn klukkan 5:30 á morgnanna og kemur sjaldnast heim fyrr en um 18-19 á kvöldin. Eftir að hann klárar það, í júlí á þessu ári, byrjar hann á tveggja ára prógrammi sem er sambland af
klínískri vinnu sem sérfræðingur, rannsóknarvinnu og tímasókn í því hvernig á að stjórna stórum rannsóknum. Planið er svo að hann geti stjórnað sínum eigin rannsóknum þegar við erum flutt heim svo hann verði ekki leiður á því að svæfa og vekja allan daginn.
Edda Brynja er orðin 10 ára gömul og er ósköp dugleg í skólanum og í fimleikum. Hún á stórann vinkonuhóp og það eru reglulega "sleep-over" og "play-dates". Hún er mjög hjálpsöm og góð við bróðir sinn. Kári Karl er nýorðinn þriggja ára og er líka í fimleikum. Hann er heima hjá mömmu sinni en byrjar í smá skóla í haust.
Allir eru við hestaheilsu og þess dagana erum við að halda á okkur hita í þessu kuldakasti sem við erum í núna.
kv
Kata
laugardagur, febrúar 17, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli