mánudagur, febrúar 19, 2007

Hvar eru strákarnir í familíunni?

Það hefur verið virkilega skemmtilegt að heyra í ykkur öllum sem þegar hafa skrifað á bloggið okkar. Hver veit nema að þetta eigi nú eftir að stuðla að aðeins meiri samskiptum, jafnvel tíðari heimsóknum eða ættartreffum.
Ella Tóta Halldór og Flosi, eruð þið ekki ÖRUGGLEGA búin að láta öll börnin ykkar og barnabörnin vita? Og Gunnar Smári? Sem ekta Hlíðarvegspúki ert þú hér með gerður ábyrgur fyrir öllu þínu fólki, systkinum og þeirra fólki. Það þarf að senda Þórdísi bloggstjóra netpóstföng sem flestra svo þeir geti verið með. Og Stella Þú hlýtur að hafa netföng Flosa og Kristjáns og Jónu.
Svo viljum við heyra í strákunum líka! Gunnar Þorsteinn, ertu nokkuð dauður? Og Höddi og Palli? H A L L Ó !

Kveðjur í allar áttir, Hidda

1 ummæli:

Kata sagði...

Ég get vottað það að Gunnar Þorsteinn var sprelllifandi 28. janúar. Þá fórum við Tjörvi í heimsókn til hans upp á 7. hæð rétt hjá Republique torginu í París.
Þeir félagarnir virtust hafa það mjög gott og buðu okkur upp á skemmtilega osta/brauðveislu eins og þær gerast bestar í París.

Það væri hins vegar gaman að heyra frá honum og krökkunum hans hérna inni líka.

Skorum á Gunnar að gefa sig fram !
Kata