miðvikudagur, ágúst 22, 2007

Hæ frændur og frænkur.

Jaja þá er ég komin inn. Gunnar Smári kom í heimsókn í gær og sýndi mér síðuna. Mér líst vel á þetta, gaman að skoða myndirnar og skemmtilegt að geta talað við alla í einu. Vona bara að fleyri bætist í hópinn. Sendi ykkur myndir af nýjasta barninu í mömmu legg. Þetta er strákur Óskarsson sem fæddist þann 11. júlí 07. Hann hefur ekki fengið naf enn, en það er víst á leiðinni. Meira seinna. Kossar og knús til allra og til hamingju Siggi og Eydís með nýju hlutverkin ykkar.

1 ummæli:

Hidda sagði...

Til hamingju Dagný Amma og Óskar Pabbi. Ég veit að stórfjölskyldan hefur beðið lengi eftir þessari mynd og bíður í ofvæni eftir fleirum. Það koma vonandi fréttir og myndir af skírn(nafngjöf) litla Óskarssonar.
Til Hamingju elsku Tóta mín með langömmutitilinn. Hann er FLOTTUR og til mikillar prýði þegar maður er jafn unglegur og þú!