miðvikudagur, júní 06, 2007

Hittingur hjá Hiddu


Það var fámennt en góðmennt í boðinu en svaka gaman.
Að sjálfsögðu var tekin mynd af þeim sem mættu í partýið.
Set hana hér með með smá útskýringum hver er hvað.
Byrjum efst:
Hidda hin eldri hangir utan á stiganum ásamt Guðrúnu Elsudóttur.
Sitjandi efst í stiganum er ég (Þórdís Ellu) með Benedikt minn, þar við hlið kemur Hidda hin yngri (Steinunn Hildur Elsudóttir) í fangi Elsu hennar Hiddu.
Næst fyrir neðan Elsu er Sóley Eddadóttir með Jóhönnu Margréti dóttur sína í fanginu, Alla litla hans Hödda hennar Öllu við hliðina á Sóley og neðst í stiganum situr eldri dóttir Sóleyjar, Karen Rut.
Nú og fyrir utan stigann standa svo Eddi Öllu og Höddi hálf sjö.
Og svo vantar náttúrulega ljósmyndarann á myndina en það var Herjolf hennar Hiddu sem smellti af.
Annars voru vöfflurnar snilld og þarna kom æðislega góð hjónabandssæla (þó ég segi sjálf frá) og ýmislegt fleira svona ef þið viljið vita af hverju þið misstuð.
Reynum bara aftur síðar.
Kveðja
Þórdís

2 ummæli:

The sagði...

Fyrir þá sem eru farnir að sjá illa (mamma...) þá er hægt að stækka myndina með því að smella á hana.
ÞE

Kata sagði...

Rosalega gaman að sjá þarna andlit sem ég hef sum aldrei séð og önnur ekki séð mjög lengi.
Þekkti hana Sóleyju þrátt fyrir að hafa ekki séð hana í 150 ár !
Ég verð bara að vona að Hidda nenni að hræra í eina vöfflu uppskrift þegar ég villist til landsins næst.

Kv
Kata