Ég hef verið að föndra við að búa til afmælisdagatal fyrir Hlíðarvegspúka og þeirra maka, í dag 20. maí eiga til dæmis Herjolf hennar Hiddu og Ríkharður hennar Birnu Láru afmæli samkvæmt mínum bókunum. Til hamingju báðir tveir.
Þar sem þetta eru svolítið margir afmælisdagar þá var ég að reyna að létta skriftuna aðeins og þá fór allt fjandans til og síðan neitaði að birta þá afmælisdaga sem hún átti að birta. Er enn að vinna í kerfinu þannig að ekki láta ykkur bregða þó það komi eitthvað skrítið í hausinn fyrir neðan fyrirsögnina. :)
Einnig ef það koma afmæliskveðjur til einhverra sem eiga alls ekki afmæli, eða þá öfugt að ef einhver fær ekki afmæliskveðju þá má gjarnan láta vita, ég verð þá bara að skammast mín ægilega og laga málið.
Svo kemur ættartréð vonandi fljótlega inn fyrir þá sem eru orðnir óþolinmóðir.
Kveðja
Þórdís Hlíðarvegspúkasíðuráðherra.
sunnudagur, maí 20, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þetta er flott Þórdís !
Það verður fyndið að sjá hve margir eiga sameiginlegan afmælisdag í þessum stóra hóp.
Skrifa ummæli