
Jæja gott fólk, þá er komið sumar og skólinn að klárast. Af því tilefni ætlum við Álfheiður Kristín að fara suður til Reykjavíkur þann 30./05. og dvelja í viku tíma. Þar sem að um er að ræða heila viku, þá finnst mér líklegt að við reynum að hitta ættingja á þessu svæði, og kannski með einhverju skipulagi (sem væri alveg nýtt hjá mér :D ) Ég veit hvar bræður mínir búa, og Hidda, en þar með er það upptalið :(. Myndirnar: Þessi mynd af Álfheiði er tekin fyrir nokkrum dögum, þegar hún var fengin í módelstörf fyrir Dyngjuna handverkshús.. Myndin af kallinum er tekin við Illugastaði í Fnjóskárdal síðasta sumar (P.s.Ég er búinn að raka mig)
6 ummæli:
sæll Höddi minn! Það var frábært að heyra að þú værir á leið í bæinn! Þú mátt bóka að mig langar til að sjá smettið á þér; hvort sem er skeggjað eða skegglaust. Við Herjolf förum til Noregs þann 7.júní en allir dagar fyrir þann tíma koma til greina. Láttu mig bara vita hvenær það passar þér að hittast því ég vil gjarnan hóa í Elsu og hennar dætur svo þær fái að hirra Ölluna þína. Ef fleiri vilja slást í hópinn, þá bara VRSÅGOD, meldið ykkur hér.Við stílum bara uppá gott veður og vöfflur útí garði, hver bakar fyrir sig og ekkert mál.
Sæl og blessuð Hidda, og takk fyrir heimboðið. Ég veit svosem ekki alveg hvenær mér myndi henta. Ég held þó að 5. Júní væri ágætisdagur hjá mér. Hvað finnst ykkur..
Fyrst kallinn er búinn að raka sig myndi ég alveg vilja hitta hann og fyrirstætuna líka. Er ekki bara málið að hittast hjá Hiddu?
Þórdís
Velkomin Þórdís! Svona um 4:30 hjá mér þann 5. Nú ef fleiri vilja mæta þá segið þið bara til, ekki síst sjaldséðnustu fuglarnir í systkinabarnaflórunni. HALLÓ: Stebbi,Gunnar og Heiða Magga og Jóna... Höddi og Palli, Fríða, Inga Stína,Birna Lára og Valdimar Já og Sóley Jói og Hreiðar.Eru fleiri sem búa í bænum? Svona drullist þið nú til að mæta einu sinni útaf engu tilefni nema að hittast í klukkutíma eða tvo eða þrjá...........
Ef einhvern langar svakalega til að baka svosem eina köku, nú þá bara verður að taka því.......!
Ég skal koma með eina eggja-hnetulausa köku svo minn stúfur geti gúffað í sig. Annars ef menn vilja þá eru nokkrar uppskriftir að eggjalausum kökum hér. Stendur til að bæta við og ef menn eiga uppskriftir endilega sendið mér. Eggja og hnetulaust takk. :o)
Þórdís
16:30 Þann fimmta, það er flott. Hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja... Höddi
Skrifa ummæli