Hlíðarvegspúkinn Einar Halldórsson verður fimmtugur þann 7. mai og ætlar að gleðjast með vinum sínum og ættingjum á morgun laugardag. Í því tilefni langar mig til að senda honum smá afmæliskveðju í bundnu máli. Ég vona að sem flestir geti tekið undir fjöldasöng það kvöld við lagið "Hann var sjómaður dáðadrengur"
Hann Einar er ofursætur
ég hef á honum miklar mætur
hann er fimmtugur nú,
hann er flottari en þú
hann er frjáls hvar hann sefur um nætur.
hann er dáðadrengurinn góði
hann er dáður í kvennastóði
og á lausu hann er, oft í laumi hann fer
inní landhelgi þeirra í hljóði.
Á gröfunni er gríðarsnarpur
já hann getur það þessi garpur
þegar drynur um jörð er hann dregur til svörð
þar fer drengurinn knár og skarpur.
Ó svo sterkur og stæðilegur
hann að standast er enginn vegur
"elsku Einar minn kær" kvakar örvingluð mær
hún er ástsjúk og rómurinn tregur.
En hann Einar það allt af sér stendur
það er alls ekki furð´ann sé kenndur
við styrkleika og þor, það er staðhæfing vor,
hann á staðfasta a-aðdáendur.
Við Hlíðarvegspúkar fljótt sjáum
hvern við sérlega virðum og dáum
hvert um foldir hann fer, okkar fyrirmynd er
hann er öðlingur, einn af fáum.
Nú afmælissönginn við syngjum
og sérstökum glösum klingjum
hann er fimmtugur nú, hann er flottari en þú
hann er fremstur af sínum jafningjum.
(Hidda frænka)
(Hidda frænka)
föstudagur, maí 04, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Það verður nú einhver að festa þennan brag á filmu MEÐ hljóði fyrir þá sem eru vant við látnir í dag.
Mér finnst að Hidda eigi að semja svona fyrir okkur öll og Valkyrjurnar vera í viðbragðsstöðu við hvert afmæli. Ég verð 35 ára í september, bara svo þið hafið smá tíma til undirbúnings.
Vona að allir skemmti sér vel í partýinu og næstu fimmtíu ár verði góð við afmælisbarnið.
Kata
Til hamingju með daginn Einar.
Skemmtið ykkur vel í veislunni.
Þórdís
Skrifa ummæli