Hamingjuóskir til allra Hlíðarvegspúka nær og fjær!
Hún litla Anja Valborg leit dagins ljós í gær, þann 6. september 2007. Það verður að segjast eins og er að hún hafði haldið fjölskyldunni í spenningstreyju (þó ekki spennitreyju) í heila viku og rúmlega það, því henni var ætlað að koma og heilsa uppá okkur þann 28. ágúst.
Nú bíðum við bara spennt eftir að heyra nánari fréttir frá Kötu, Tjörva eða Tótu ,af og um stærð, lengd og lögun hinnar litlu nýbökuðu Hlíðarvegspúkadömu.
Var hún stærri eða minni en minn,-... þinn, -... eða hinn -............................
föstudagur, september 07, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Til hamingju með stúlkuna og nafnið. Bíð spennt eftir tölum og myndum. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem Kata gengur með framyfir?
Kveðjur
Þórdís
Tek undir það, til hamingju með litlu prinsessuna ykkar og nafnið. Bestu kveðjur til ykkar allra þarna í Amrikunni kv Flosi og Laufey
Skrifa ummæli