föstudagur, apríl 27, 2007

Blessuð blíðan

Loksins tókst þetta, með Þórdísi tölvunörd í símanum þorði tölvuskrípið ekki annað en gegna
öllu því sem við sögðum henni. Ég veit ekki enn hvert síðasta bloggið mitt (verulega umfangsmikið og vandað)lenti en svo mikið er víst að ég hef ekki séð tangur né tetur af því.
Hvað um það, takk fyrir alla pistlana ,Höddi hálfsjö, Þórarinn Flosi , Gunnar Smári ,Kata og hin öll. Verulega gott að heyra frá ykkur og vita hvað er á döfinni . Ég er enn að vona að mínur afkomendur, aðrir en Þórdís, fari að láta til sín heyra.en þeim er greinilega ekki mikið niðri fyrir,enn sem komið er. Hér er mikil blessuð blíðan, 14 stiga hiti og sól og hefur verið undanfarna daga, svo prófaundirbúningur og æfingar er ekki endilega það sem mann langar mest til að gera
En sem betur fer hefur gestagangur verið talsverður síðastliðinn mánuð og því nóg annað að hugsa um. Höddi hálfsex og Magnea komu á páskunum með fjölskylduna, Einar Gylfa( sem hélt upp á tíu ára afmælið sitt heima hjá afa og ömmu á föstudaginn langa) og Mörtu Maríu sem er fimm ára. Þórdís og Björgvin komu líka með prins Benedikt, eins árs sjarmör, sem er frátekinn fyrir prinsessuna sem fæddist í Danaveldi fyrir skömmu. Það var því líf og fjör í kotinu Þá helgina. Á sumardaginn fyrsta komu svo Palli og Berglind með sín tvö börn Hálfdán Hörð og Matthildi Maríu og voru til sunnudags. Látum gott heita í bili , hver veit nema meira komi seinna, Ennþá sakna ég margra sem ég er viss um að eiga tölvur og netföng og mættu láta til sín heyra Kveðjur úr blessaðri blíðunni fyrir Westan. Ella

5 ummæli:

Kata sagði...

Ég játa mig sigraða. Get ekki fyrir mitt litla líf áttað mig á því hvers vegna Höddarnir eru hálfsex og hálfsjö.

Getur einhver útskýrt fyrir mér, fávísri konunni?

The sagði...

Fávísi kannski ekki rétta orðið enda þessi fjölskylda þekkt fyrir að vera með svooooo langsótta brandara að það er ekki fyrir nokkurn mann að skilja. Mér skilst að hálf sex og hálf sjö útskýrist einfaldlega af því að þegar brandarinn var sagður þá var annar þeirra hálf sex(ára) en hinn hálf sjö.
Fór reyndar og fletti þeim upp og sé að þeir eru báðir fæddir á sama árinu svo að reiknilist ættarinnar er sú sama og áður, frekar glötuð! :o)
En þeir sem bjuggu brandarann til ættu kannski að kommenta eitthvað á þetta hah...!
Kveðjur
Þórdís
p.s Kata fékkstu póstinn frá mér?

Kata sagði...

Takk Þórdís, mér líður mun betur!

Jú ég fékk póstinn og er að vinna í þessu. Sendi líklega til baka í kvöld. Þetta er stóóóóóóór hópur.

Ella sagði...

Fáein orð til viðbótar við annars nokkuð réttar upplýsingar Þórdísar um viðnefnin hálf sex og hálf sjö á Höddunum tveimur Einu sinni var Ísafjörður stórbær með blómstrandi atvinnulíf og fékk Miðfell( þá h.f.) með heila malbikunarstöð til bæjarins til að gera fínar götur bæjarins. Stöðinni fylgdi hópur vaskra manna (þar á meðal Hreiðar nokkurn Hálfdánarson) og settiat hópurinn að í skíðaskálanum á Seljalandsdal með allt sitt hafurtask og ráðskonu ,Öllu systur, með tvo litla drengi, Stefán Ólaf og Hörð Sigurjón.Höddarnir urðu nánast óaðskiljanlegir þetta sumar. þeir eru að vísu fæddir á sama árinu, sá eldri 4.febrúar en hinn 20 október. það var því einn Höddi orðinn sex ára og sex mánuðum betur en hinn átti ennþá hálft ár í sex ára afmælið Það lá því beint við að kalla þá hálfsex og hálfsjö. Þetta voru miklir dýrðar dagar.

Hidda sagði...

Bíðum nú við. Hm... 2x2 eru 4
2x3 eru 6
hvað kom nú næst? mikið dj. er þetta nú snúið. Var ekki verið að svindla að Hödda hálfsex? hann átti bara tvo mánuði eftir í þennan mikilvæga áfanga og var meira að segja búinn að missa tönn eins og hinn Höddinn!
En svona fjölskyldusögur eru skemmtilegar og eiga ekki að þurfa að gjalda fyrir sannleiksást eða stærðfræðikunnáttu!
MEIRA! MEIRA!