fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt sumar!


Gleðilegt sumar allir Hlíðarvegspúkar.
Set hérna eina sparimynd af yngsta meðlimi Fagraholts 14 slektsins, hann var að hoppa í sófanum en tók sér smá pásu til að leyfa mömmu að taka mynd fyrir Hlíðarvegsbloggið.
Kveðjur úr Kórnum.
Þórdís

3 ummæli:

Kata sagði...

Hann er nú meiri fegurðarprinsinn Þórdís!
Til hamingju með að vera flutt inn í húsið ykkar, ég hlakka til að fá að koma í heimsókn við tækifæri. Ef eitthvað fínt hús losnar í hverfinu eftir rúm tvö ár þá lætur þú mig kannski vita ;o)

Annars tek ég bara undir sumarkveðjurnar. Hérna er loksins hætt að rigna og sólin farin að ylja okkur, akkúrat í takt við Íslenska sumardaginn.

Kv
Kata

The sagði...

Húsið hér á móti er til sölu, sett á það 69 milljónir fokhelt. Miðað við verð þá reikna ég með að það verði enn í sölu þegar þið flytjið heim!
Annars er hægt að skoða það á mbl.is slærð bara inn Fjallakór og þá sérðu alla dýrðina. Það yrði nú flott að fá ykkur á móti!
ÞE
p.s. hér er sumarið í takt við hið íslenska, það snjóaði í dag.

Kata sagði...

Þórdís þetta er hrikalega flott hús og passar okkur vel. Mig langar nefnilega í aukaíbúð fyrir alla gestina sem ætla að koma til okkar og Tjörvi vill útsýni yfir Esjuna og Snæfellsnesið.

Nú er bara að safna sér þessum 69 millum + einhverjum 40-50 tilviðbótar sem kostar að innrétta.

Einhver sem býður framlög?