Gleðilegt sumar frændur og frænkur nær og fjær
Þá er að reyna að koma með einhverjar fréttir af familíunni
Eins og pabbi og mamma skrifuðu um daginn þá er ég gift og á litla dúllu sem heitir Guðný Magnea ( alltaf kölluð Magga ) og er að verða tveggja ára í haust og maðurinn minn heitir Pétur. Við gifturm okkur í júní 2005. Við búum eins og er heima hjá mömmu og pabba á Háaleitisbrautinni í góðu yfirlæt þeirra og Magga litla nýtur þess í botn að hafa ömmu og afa til að gera óþekk ( sérstaklega afa ). Við erum búin að vera hjá þeim síðustu fjögur ár á meðan að ég var í skólanum en nú stefnum við á að fara að í okkar eigið húsnæði jarfnvel í haust eða eftir áramót.
Magga er í pössun hjá konunni sem að býr á fyrstu hæðinni hjá okkur ásamt tveimur öðrum börnum. En svo núna í ágúst þá mun hún byrja á leikskóla sem að er bara hérna við hliðana á okkur.
Ég útskrifaðist frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti síðast liðið vor sem sjúkaraliði og starfa sem slík í dag á Hrafnistu en ég hef reyndar verið að vinna þar síðasta 6 ½ ár. Pétur er að keyra hjá strætó með pabba gamla. Pétur á einn strák sem að heitir Bjarni og er að verða 13 ára og býr hjá mömmu sinni í Grafarvoginum.
Inga Stína og familí
laugardagur, apríl 21, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Velkomin á bloggsíðuna okkar Inga Stína og já líka Flosi og Rannsý! Já þetta er allt að koma. Bíð bara eftir að þið krakkarnir farið að svara hverju öðru og kommentera svona af og til, til þess er leikurinn gerður.Við Þórdís vorum að útbúa niðjatal yfir alla Hlíðarvegs25 púkana, maka þeirra og afkomendur sem þá... að sjálfsögðu ERU og dæmast til að VERÐA Hlíðarvegspúkar ævilangt. Já hvort sem þeir vilja eða ekki! Það var til dæmis enginn sem spurði Norðmenn á sínum tíma hvort þeir vildu verða Norðmenn, enda eins gott því að sjálfsögðu vildu þeir allir vera Íslendingar! Fyrirgefið Ísfirðingar...ég meina Hlíðarvegspúkar: Nú vantar okkur bara þjóðsöng og Hlíðarvegsfána og nokkur sendiráð og þið vitið... allt hitt sem tilheyrir.Og Þórdís er sjálfkjörinn forsætisráðherra en samt ekki nema hún birti hið snarasta listann yfir hina innvígðu og innmúruðu þegna sína.Eða hvernig var þaðnú....?
Meiningin var að setja ættartréð á eitthvað "vefvænna" form en excel. Það er í vinnslu og vonandi birtist þetta sem fyrst.
Kv.
frk forsætisráðherra og Kórstjóri.
Ég verð nú bara að segja að mér finnst frábært að heyra frá einmitt Ingu Stínu og Flosa því að mér finnst ég alveg hafa misst af þeirri greininni af trénu í gegnum árin. Það væri ekki verra að fá nokkrar myndir ykkur svo ég myndi þekkja fólk á götu (segi ég eins og ég sé alltaf úti á götu í Reykjavík ;o)), ekki er heldur verra að vita að maður ætti að þekkja meirihluta strætisvagnastjóra borgarinnar.
Hidda og Hæstivirti Forsetisráðherra Þórdís Einarsdóttir, ég sæki hér með um sendiherrastöðu Hlíðavegspúka í Boston og nágrenni.
Ég tel að landfræðilega liggi ég ágætlega við og lofa að taka vel á móti öllum Hlíðarvegspúkum sem eiga leið um austurströnd BNA, eða allavega stór-Dedhamsvæðið.
Laun geta verið eftir samkomulagi, Íslenskur lakkrís og Nóa Kropp hefur komið gestum ansi langt hingað til.
Sumarkveðjur.
Kata og hálfbökuð stelpusnúlla í kút.
Ég skal reyna að setja inn myndir af familíunni ( lofa engu um árangurinn ) sem fyrst.
En annars þá þurfti ég nú að spyrja pabba um það hver þú færir þar að segja dóttir hvers þú værir Kata mín svo að ég er ekkert betur sett með ættartréð :þ
Elsku Inga Stína mín! Það var svo flott að heyra frá þér. Ekki bara fyrir mig, heldur börnin mín og barnabörnin líka. Ég ætla að vera dugleg að kenna þeim smávegis ættrækni með því að sýna þeim þessar síður. Við tvær höfum jú ekki hittst síðan í Bónus fyrir nokkrum mánuðum og sem betur fer þekkti ég þig strax. En ef það hefði verið Elsa, Hulda eða Árni, þá veit ég svei mér ekki! Þau hefðu örugglega ekki þekkt þig og það er miður!
Skrifa ummæli