þriðjudagur, apríl 17, 2007

Kveðja frá Háaleitisbraut 45

Heil og sæl öll
Hér á Háaleitisbrautinni er gott að vera. Við höfum búið hér í rúm 2 ár og þessi tvö ár eru búin að vera frábær.

Í fjölskyldu okkar eru þrjú börn elst er Birna Lára, hún er snyrtifræðingur, og hún á tvo púka, Kjartan Inga fæddan á Ísafirði 1996 og Guðmund Flosa fæddan í Reykjavík 1997. Hún býr með Ríkarði Utley, strætisvagnabílstjóra. Ingibjörg Kristín, sjúkraliði, gift Pétri Gunnari Þór Árnasyni strætisvagnabílstjóri, þau eiga Guðnýju Magneu fædda í Reykjavík 2005. Valdimar Guðmundur er yngstur okkar barna, hann er með ólæknandi bíladellu svo það kom ekki á óvart þegar hann tók meiraprófið og starfar nú sem bílstjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Einnig er hann í Leikfélagi Kópavogs og situr hann það í stjórn. Einnig sér hann um ljósahönnun hjá fleirum leikfélögum, nú síðast hjá Stúdentaleikhúsinu og er þar sýningarstjóri.

Flosi er enn að keyra strætó og Rannsý vinnur hjá Landsbankanum og við erum sjálfstæðir dreifingaraðilar Herbalife og erum að fara í boði þeirra til Danmerkur fyrstu helgina í maí. Ef þið viljið vera með okkur í þeim félagskap þá er pláss fyrir ykkur öll og fleiri til.

Kveðja
Flosi og Rannsý

1 ummæli:

Höddi Karls sagði...

Ne.. Komiði sæl.. Gaman að s(k)já ykkur hérna.. Það er svosem allt við það sama héðan síðan við hittumst síðast, ég bara varð að kasta nokkrum orðum suður til ykkar.

Kveðja.. Höddi