miðvikudagur, apríl 04, 2007

Paskakveðjur

Hæ allir nær og fjær.

Ég vildi bara senda ykkur öllum Gleðilegar Páskakveðjur.
Hérna í Ameríkunni er ósköp lítið um páskafrí um hátíðarnar. Það er að vísu frí í skólanum Föstudaginn langa (sem er kallaður Good Friday hérna) en svo er það bara búið. Ég held að þetta "annar í páskum/jólum/hvítasunnu" sé mjög Íslenskt fyrirbæri. Allar búðir eru opnar alla dagana svo maður getur skellt sér í bíó eða í Mall-ið í miðjum páskamatnum.

Við erum svo heppin að vinkona mín frá íslandi er hjá okkur um páskana og ferjaði með sér ekta Íslensk súkkulaði páskaegg. Amerískir siðir eru dálítið skrýtnir í okkar augum. Við þurfum til dæmis að ákveða hvort við ætlum að reyna að ljúga því að börnunum að páskakanínan komi nóttina fyrir páska og feli plastegg full af nammi á víð og dreyf um garðinn.
Hinn möguleikinn er að allir hinir krakkarnir í götunni fái heimsókn frá þessari úrkynjuðu risavöxnu kanínu (sem verpir eggjum) en ekki Íslensku börnin.

Bestu kveðjur frá okkur í Dauðskinkubæ.
Kata

2 ummæli:

The sagði...

Getið þið ekki kennt þessari risavöxnu kanínu að verpa alvöru páskaeggjum númer 6 frá Nóa gamla Síríusi?

Kata sagði...

Það hefði auðvitað verið best. Ætli það gildi ekki það sama um kanínur eins og hunda að það er erfitt að kenna gömlum svoleiðis að sitja, ja eða verpa annarskonar eggjum. Við enduðum á því að ljúga ekki að börnunum en földum súkkulaðieggin á fólskulegum stöðum að Íslenskum sið ;o)