Jæja þá erum við nú loksins komin heim í heiðardalinn eftir mánaðardvöl í Haugesund. Hulda og Max voru komin sólarhring á undan okkur með sína litlu Elínu Snæfríði og auðvitað voru amma og afi alveg himinlifandi yfir endurfundunum, enda ekki séð litlu konuna í heila 3 mánuði. Þau ætla að dveljast á Islandi í um það bil mánuð og ef einhver vill hitta þau eru þeir hinir sömu velkomnir hingað í Melgerðið.
Annars for tíminn í Noregi aðallega í að mála húsið og dytta að ýmsu þar eins og gengur, svo við vorum meira og minna hangandi í körfulyftara eða stillas allan tímann. Reyndar getum við státað okkur af mun stærri og flottari líkamsræktaraðstöðu en hann Gunnar smári því þar þarf bæði að hlaupa á eftir rollum og slátturvélum í kílómetravís.
Annars langar mig til að nota þetta tækifæri og senda eina spes-kveðju til Maríönnu ÞórðarogFríðudóttur sem var að útskrifast sem stúdent í gær, aðeins 17 ára gömul.
GLÆSILEGT!
Kv. Hidda.
sunnudagur, júlí 08, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Velkomin heim og kveðjur til Maríönnu, til hamingju sæta með árangurinn.
Og að öðru, ætlar enginn að blogga um nýjasta Hlíðarvegspúkann? Flosi?
Það fæddist nefnilega önnur stelpa, Siggi og frú eignuðust stúlkubarn um daginn, man ekki dagsetninguna og vil fá nánari fréttir og MYNDIR takk.
Þ
Skrifa ummæli