
Sæl verið þið, til hamingju með daginn um daginn Þórdís. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, krakkaormarnir sem maður man eftir með hor niður á maga bara orðin fullorðin, farin að búa og allt.
Hvernig er það, er ekki hægt að láta myndina af afa og ömmu byrtast við hliðina á "Hlíðarvegs 25 púkonum" þarna efst uppi, þannig að þau vaki yfir síðunni. Gæti verið gaman ef hægt væri að koma því við.
2 ummæli:
Einhvernveginn svona?
ÞE
Glæsilegt hjá þér Þórdís mín, ég vissi að ég gæti treyst á þig. Var reyndar að velta því fyrir mér hvort betra væri ef hægt er, að hafa þau við hliðina á "Hlíðarvegspúkonum þarna uppi. Ef það er ekki hægt þá er þetta bara glæsilegt.
Skrifa ummæli