laugardagur, mars 03, 2007

Takk fyrir myndirnar Gunnar

Ég þakka Gunnari fyrir myndirnar og finnst hugmyndin frábær. Þarf bara að sortera þær eftir "genum og gunnum". (stofnfumurannsóknir eru ekki heimilaðar ennþá því miður) En þá er líka mikilvægt að þær séu rétt merktar þannig að enginn ruglingur verði. Þess vegna ætla ég að koma með smá leiðréttingu á fjölskyldumyndinni af Halldóru ömmu því það voru nokkur atriði sem ekki voru rétt:
Á myndinni fyrir miðju er Halldóra Pétursdóttir Zar, mamma hennar Sigríðar ömmu ykkar (mömmu) á Ísafirði. Bönin hennar frá vinstri á myndinni eru:
Sigríður Ásgeirsdóttir fædd 7. september 1903, dáin 1981, gift honum Jóni sínum og ættmóðir okkar allra.
Þórunn Ásgeirsdóttir fædd 17. apríl 1898 dáin 1996, ógift og barnlaus.
Í fangi ömmu Halldóru situr "Diddi frændi" Ásgeir Einar Jóhannesson, yngsta barnið og hálfbróðir hinna. Hann er fæddur 1913, dáinn 1990.(Kvæntur "Billy" Þuríði Edvald og þau áttu Gunnar, Samúel og Jóhönnu Halldóru (Hönnu Dóru).
Kristín Álfheiður Ásgeirsdóttir fædd 1897, dáin 1918 í spönskuveikinni sem þá geisaði. Ógift og barnlaus.
Gunnhildur Ásgeirsdóttir fædd 1902, dáin 1975, ógift og barnlaus.
Á myndina vantar Kristján Ásgeirsson sem fæddur var 1899, dáinn 1992. Hann varð snemma ekkjumaður og einstæður faðir með 1 barn, hana Eddu frænku okkar sem er kennari í MH
og býr í Reykjavík.
Vona að fleiri eigi eftir að senda myndir og að einhver tölvuklárinn (þorði ekki að segja nördinn) finni þörf hjá sér til að skipuleggja albúmið.
Bestu kveðjur til allra, Hidda.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir leiðréttinguna Hidda mín, ég held að þetta sé komið rétt núna. Ef ekki láttu mig það vita.

Hidda sagði...

Æ lagaðu þá ef hægt er: hann Diddi frændi var jóhannESson ekki jóhannsson