... til að segja alvöru fréttir?
Ég held að allir mínir nánustu séu búnir að frétta eftir aðeins persónulegri leiðum en núna kem ég þessu áleiðis til allra hinna.
Við eigum nefnilega von á barni númer þrjú !
Ef allt gengur eðlilega fyrir sig þá er áætlaður komutími í lok ágúst svo deigið er rétt að byrja að hefast. Þetta er aðalástæðan fyrir því að við verðum ekkert á ferðinni á Íslandi í sumar en planið er að koma um áramótin að sýna afkvæmið.
Kannski getum við stillt upp einhverjum hittingi þá.
Kveðja
Kata og krílið
mánudagur, febrúar 19, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Og þá ætla ég að vera sú fyrsta sem nota þetta kerfi til að óska ykkur TIL HAMINGJU með númer þrjú. (úff, ég er engan veginn að standa mig sé ég...)
Vonandi gengur allt vel og við sjáum hressan og hraustan hlíðarvegspúka í ágúst.
Númer hvað ætli hann sé þá, hefur einhver tölu?
Þórdís
Elsku Kata mín hvað þetta eru skemmtilegar fréttir! Til hamingju! Edda Brynja og litli Kári Karl hljóta að fagna nýju litlu kríli. En það er bara eitt sem þú verður að hafa í huga og það er að við það bætist við lítill oddamaður í fjölskylduna; lítill framsóknarmaður eða kona sem á eftir að stjórna öllum ykkar gerðum í framtíðinni! Hmmm! bara eitt ráð við því kona góð.
...............svona eftir 2 ár!!!
Elsku Kata
Innilega til hamingju með bumbuna ! Vá hvað þið eruð dugleg í barneignunum eitthvað. Mig langar svo að koma í heimsókn áður en þið flytjið heim, best að fara að drífa sig áður en þú verður orðin þúsundbarnamóðir...
knús, Hulda
Skrifa ummæli