þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Fríða skrifar

jæja, þetta gengur víst ekki... verð að viðurkenna það enn og aftur að ég
tilheyri ekki tölvuvæddu kynslóðinni... er sko ekki alin upp með henni
nema að mjög litlu leiti....of gömul eflaust !!
Af okkur hér er bara allt gott að frétta, lífið gengur sinn vanagang dag
eftir dag, viku eftir viku.... og reyndar ár eftir ár. Breytingar eru
eðlilega þær að allir eldast, flestir stækka og aðrir vonast bara til að
stækka.

Í eins stuttu máli og hægt er af börnunum, þá er þetta helst:
Magnús yngstur, 7 að verða 8 ára þann 22.nóvember, afskaplega duglegur og skemmtilegur strákur, bogmaður eins og þeir gerast bestir, fær alla til að brosa, hraustur og hress, er í 2. bekk í Álftamýrarskóla og æfir fótbolta með 7. flokki Fram, ætlar að verða fótboltastjarna þegar hann verður stór. Æfir líka fimleika með UMFKjalarness undir stjór Maríönnu elstu systur sinnar, fyrst og fremst til að liðka sig og hafa gaman.

Katrín 8 ára og alveg að verða 9 ára þann 17. mars. Er í 3. bekk,líka í Álftamýrarskóla og líkar vel, æfir fimleika með Ármanni og UMFKjalarness og er farin að læra á píanó.. svo nú hljóma kunnuleg lög um húsið. Yndisleg stelpa, hraust og hress með mikið jafnaðargeð. Ætlar að verða dýralæknir þegar hún verður stór, staðráðin í því enda mikil dýramanneskja, á páfagauk, hlut í hund hjá Siggu frænku á Ísafirði... sem er þar af leiðandi langbesta frænka hennar (af því að mamman getur ekki bætt hundi inn á heimilið enn sem komið er) á líka eitthvað í hestunum hans Halldórs afa af því að hún er svo dugleg að hjálpa honum í hesthúsinu, vonast til að eignast kettling, en bíður þolinmóð eftir að draumurinn um að eignast eigin hund rætist (það skal þá vera KingCharles)

Halldór Jón S. 10 ára og verður 11ára þann 12.júlí (var aðeins of seinn í heiminn til að ná afmælisdegi Jóns langafa) er í 5. bekk Álftamýrarskóla og gengur afskaplega vel, vel gerður strákur, skemmtilegur og duglegur auðvitað eins og öll hans ætt, æfir fótbolta með 5.flokki Fram, vill gjarnan æfa handbolta og fimleika líka... en þarf að velja.. er að læra á gítar og farinn að spila skemmtileg lög..love me tender og fleiri góð, ætlar að verða rafvirki þegar fótboltaferlinum líkur;)

Maríanna 17 ára að verða 18 ára í október, er alveg að ná hæð mömmu sinnar, (þarf reyndar ekki mikið til... er í Menntaskólanum Hraðbraut á hraðferð og klárar stúdentspróf í júní ef allt gengur upp (eigum svo sem ekki von á öðru) Er formaður skemmtinefndar í skólanum og leiðist það ekki, félagslynd og opin stelpa, stefnir á íþróttalýðháskóla í Danmörku næsta vetur svona til að fá meiri útrás fyrir íþróttaáhugann og leika sér eftir krefjandi skólasetu yfir skruddunum, að því loknu er óvísst hvað tekur við en Listaháskólinn er e-ð sem heillar, hönnun og myndlist
hugsanlega, annars sálfræði eða e-ð mannlegt.... aldrei að vita...þjálfar fimleika á Kjalarnesinu og tekur þátt í 10km hlaupum þegar tími er til..gengur gjarnan á fjöll og reynir að komast á skíði þegar er snjór.

Einar 19 ára og bráðum tvítugur eða þann 11.nóvemer!! ókvæntur og barnlaus og ætlar sko alls ekki að eiga fleiri en eitt barn...mesta lagi tvö... er yfirleitt góður og jákvæður við systkini sín,er í Menntaskólanum við Hamrahlíð og er ekki að flýta sér eins og systirin, góður strákur og ljúfur. vinnur á Dominos með skólanum, hefur mikið gaman af tölvuleikjum...spilar EVE online, á Porsche eins og fleiri í ættinni og "fílar það í tætlur"... finnst samt ekki eins gaman þegar bílinn bilar... líkar bara þokkalega vel á hótel mömmu,...óvísst hvað framtíðin ber í skauti sér....

Þórður maðurinn minn, vinnur á fasteignasölunni Akkúrat svo ef þið þurfið að selja eignir þá er langbest að snúa sér til hans auðvitað, er líka kominn í nám í Mannauðsstjórnun í HÍ og líkar það vel, krefjandi og tímafrekt en gaman, er reglulega í ræktinni enda meðvitaður um heilbrigðan lífsstíl eins og aðrir í fjölskyldunni, gengur gjarnan á fjöll og tekur alla með sem vilja, er líka nuddari og nuddar fjölskyldu og aðra sem óska eftir því þegar hann hefur tíma, þjálfar fótbolta á Kjalarnesinu.. er frábær faðir barna sinna

Og svo ég sjálf,bara eins og fyrr, reyni að láta hlutina ganga á heimilinu og vera börnum mínum góð fyrirmynd (tekst alls ekki alltaf) kenni íþróttir í Menntaskólanum í Reykjavík, kenni einnig 6 ára börnum í íþróttaskóla Álftamýrarskóla og Háteigsskóla, kenni konum á Kjalarnesi heilbrigðan lífsstíl með góðri hreyfingu, er "formaður" umfKjalarness og skipulegg íþróttastarfið þar, langar að bæta við mig master í lýðheilsu(gerist bara síðar).. ferðumst eins og kostur er með fjölskyldunni þegar tækifærin gefast, þá helst á fjöll eða fallega staði á landinu, er á leið til Búdapest í apríl með MR-ingum, finnst að sólarhringurinn ætti að vera lengri svo hægt sé að sinna áhugamálum..langar að dansa og syngja.... getur einhver sagt mér hvar maður finnur þennan frítíma... veit það eru danstímar hjá eldriborgurum...get alltaf huggað mig við það og hlakkað til!

Þessi rommsa dugar í bili, veit ekki hvort þið sjáið þetta og það verður þá bara að hafa það.... verið dugleg að skrifa fréttir, hittumst í vor ALLIR!!
b.kv.Fríða H

gaman að heyra frá ykkur Hidda og Kata!!

2 ummæli:

The sagði...

Rosalega gaman að heyra frá þér og öllum þínum Fríða. Það er allt of
langt síðan ég hef séð þig.
Ég veit alltaf hvað Magnús er gamall því ég sá hann nýfæddann á
sængurdeildinni stuttu áður en við fluttum út, 4. desember 1999.
Mér sýnist þú hafa nóg að gera og meira en það. Hugsa að það sé
einhver að hafa vit fyrir þér með því að hafa ekki fleiri klukkutíma í
deginum því þú myndir örugglega troðfylla þá líka með einhverju öðru
og ekki nota þá í að dansa eða slaka á.

Knús á línuna frá annarri heimsálfu.
Kata

Elsa Herjolfs sagði...

Ó mæ god, Fríða mín. Svo finnst mér ég oft ekki hafa mikinn tíma fyrir sjálfa mig... Hvernig ferðu að þessu?

Og Kata, svona verður þitt líf bráðum, með 3!!!
En það verður áreiðanlega svaka stuð!!!
knús, Elsa 2 barna móðir auk 58 stjúpbarna í Korpuskóla. Lífið er því ansi fjörugt þessa dagana!