
Svona er nú staðan hjá okkur í dag.
Ég er að vinna hjá Kvos sem er móðurfyrirtæki Prentsmiðjunnar Odda, Kassagerðarinnar, Gutenberg og fleiri. Upphaflega var þetta bara Prentsmiðjan Oddi en ég brá mér í árs barneignarfrí og þá fóru stjórnendurnir yfir um og skiptu fyrirtækinu niður í nokkra hluta. Maður má ekki líta af þeim.
Björgvin vinnur hjá Marel og ferðast mikið um heiminn, hefur m.a. farið til Nýja Sjálands, Ástralíu, Ameríku og núna síðast Svíþjóðar. Hann hefur undanfarið verið í styttri ferðum en annars var hann í þrjár til fimm vikur í útlöndum.
Benedikt fæddist í okt 2005 og er alnafni föðurafa síns. Hann er mikið uppáhaldsbarn enda skapgóður með eindæmum og skemmtilegur. Líkist pabba sínum og afa sínum Einari í skapinu en er reyndar stundum þverari en #$%* og enginn virðist vita hvaðan það kemur. Mig grunar það þó en ég hef ekki hátt um það!
Honum þykir ryksugan skemmtilegust af öllu og stendur við þvottahúsdyrnar og gargar ef hann fær ekki sinn ryksugutíma. Hann er hjá æðislegri dagmömmu meðan ég er í vinnu en þar sem hún er að hætta í haust þá vona ég að hann komist inn á leikskólann þá.
Við erum að byggja okkur hús í Kópavoginum, alveg að klárast og vonandi flytjum við í næsta mánuði. Það verður breyting fyrir okkur sem alltaf höfum búið í smákytrum og núna í einu herbergi hjá foreldrum Björgvins í Grafarvoginum.
Fyrir þá sem vilja fylgjast nánar með framkvæmdum erum við með bloggsíðu undir http://fjallakor.blog.is/blog/fjallakor/ og síðan eru myndir hér: http://www.pjus.is/myndir/fjallakor/
Bestu kveðjur
Þórdís
4 ummæli:
Hann er nottulega ekkert eðlilega sætur drengurinn !
Nákvæmlega eins og mamma hans. Engin þörf á "móðernisprófi" eins og á mínum krökkum.
Kannski ég læri að setja inn mynd til að sanna mál mitt.
Kata
Það fer náttla ekkert á milli mála hvaðan hárvöxturinn kemur, ekki kemur hann frá Björgvini allavega, eitthvað lítið um hárvöxt þar!
ÞE
þetta er nú meira montið í þér þórdís! Þú sem varst svotil sköllótt fram yfir fermingu! Ég er sammála því að drengurinn er bráðfallegur, en þú átt ekkert annað en munninn og nebbann!
En þetta er allavega voða sætur nebbi,hvaðan sem hann kemur!
knús, Elsa
Skrifa ummæli